Bloggar | 5.5.2009 | 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl næstkomandi, verður að vanda opinn dagur í Háskólanum á Bifröst. Nemendur, kennarar og annað starfsfólk kynna starf skólans og sýning verður á verkefnum nemenda.
Boðið verður upp á skoðunarferðir undir leiðsögn nemenda um háskólaþorpið og íbúðir á stúdentagörðum verða til sýnis. Líkamsræktarstöðin og pottasvæðið opið.
Nemendafélagið kynnir hið fjölbreytta félagsstarf sem unnið er á Bifröst.
Deildarleikar Bifrastar verða haldnir sama dag en þá verður keppt í ýmsum íþróttagreinum (sexþraut). Keppnisgreinar eru fótbolti, körfubolti, kúluvarp, skjalatösku- og hælahlaup, víkingaspilið Kubbur og skotbolti.
Fyrir sigur í hverri grein fær viðkomandi lið þrjú stig en liðið í öðru sæti fær eitt stig. Að lokum verða stigin talin og deildameistarar 2009 krýndir. Fimm lið taka þátt í keppninni; lið viðskipta-, laga-, félagsvísinda- og frumgreinadeilda auk liðs meistaranema.
Boðið verður upp á vöfflukaffi og ís og miða í Hvalfjarðargöngin fyrir heimleiðina. Leiktæki fyrir börnin verða á háskólatorgi og þau geta farið á hestbak í umsjón fullorðinna.
Dagskráin stendur frá klukkan 14.00 - 17.00. Allir velkomnir.
Bloggar | 22.4.2009 | 15:30 (breytt kl. 15:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ágætu hollvinir.
Með þessu bréfkorni vil ég minna ykkur á að 90 ár eru liðin frá því að Samvinnuskólinn hóf starfsemi sína og 50 ár síðan Nemendasamband Samvinnuskólans var stofnað. Þessara tímamóta er minnst með ýmsum hætti hér á Bifröst á árinu eins og ykkur er væntanlega flestum kunnugt um.
Það er einkum tvennt sem mig langar að minna ykkur á núna og biðja ykkur að setja sérstaklega inn á stundaskrá hjá ykkur.
Föstudaginn 18. júlí verður haldin menningarhátíð á Bifröst í tilefni af 90 ára afmæli skólans, sem Edda Björgvinsdóttir leikari og nemandi í menningarstjórnun við Háskólann á Bifröst hefur tekið að sér að skipuleggja. Þann dag verður hér skemmtidagskrá fyrir alla fjölskylduna frá kl. 11:00 til 16:00 og verður dagskráin auglýst nánar í fjölmiðlum næstunni.
Laugardaginn 13. September verður síðan haldinn hollvinadagur hér á Bifröst í tilefni af 50 ára afmæli Hollvinasamtaka Bifrastar en forveri þeirra, Nemendasamband Samvinnuskólans, var stofnað þann 14. september 1958. Dagskráin þann dag verður í grófum dráttum þannig að golfmót hollvina verður haldið á Golfvellinum Glanna frá kl. 10: 00 til 14:00. Kl. 15:00 til 16:00 verður frumsýning á heimildarmynd um líf og starf í Bifröst sem ber vinnuheitið Í hrauninu heima og Gísli Einarsson fréttamaður í Borgarnesi hefur tekið að sér að gera. Eftir frumsýningu myndarinnar verður frjáls tími þar sem gamlir skólafélagar geta spjallað saman og rifjað upp gamlar endurminningar, farið í gönguferðir um nágrennið og jafnvel skroppið í sund ef áhugi er á því. Þá verður líka hægt að kaupa sér hressingu á kaffihúsinu á Bifröst. Um kvöldið mun síðan hljómsveitin Upplyfting leika fyrir dansi í hátíðasalnum af sinni alkunnu snilld.Ekki verður hægt að fá gistingu á Bifröst á þessum tíma þar sem skólastarfið verður komið í fullan gang og því allt húsnæði upptekið. Hins vegar má benda á gistimöguleika í sumarhúsum í nágrenninu og einnig á gististöðum í héraðinu eins og á Hraunsnefi, í Munaðarnesi, Hótel Hamri, Hótel Borgarnesi og Hótel Reykholti svo eitthvað sé nefnt. Vissara er að gera ráðstafanir í þessu efni í tæka tíð ef t.d. einhverjir árgangar ætla að taka sig saman og mæta.
Hollvinasamtökin munu tryggja sætaferð frá Umferðamiðstöðinni í Reykjavík kl. 13:00 þennan dag og til baka um kvöldið eftir að dansleik lýkur ef einhverjir þurfa á því að halda og verður nánar tilkynnt um það síðar.
Vonumst til að sjá sem flest ykkar á Bifröst þann 13. september nk.
Munið að taka daginn frá strax.
Með bestu kveðju,
Fh. Hollvinasamtaka Bifrastar.
Þórir Páll Guðjónsson.
Bloggar | 29.6.2008 | 22:39 (breytt kl. 22:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þetta er greinilega steindauður vefur hjá okkur (ykkur). Fenguð þið kannski alveg nóg hvert af öðru á útskriftarafmælinu í fyrra?
Datt bara svona í hug, ef ske kynni að eitthvert ykkar myndi ramba hér inn, að segja af mér örlitlar fréttir. Í gær flaug ég til Spánar - keypti mér miða aðra leiðina og er sestur að á Costa del Sol, nánar tiltekið í úthverfi Marbella sem heitir Nueva Andalucía. Fannst rétt að drífa í því (ekki þó Drífa Skúla) að rífa mig upp og fara á nýjar slóðir áður en ég yrði of gamall, sem aftur minnir mig á það að á morgun verð ég hálffimmtugur (blóm og kransar afþökkuð).
Og þetta er að sjálfsögðu frábær tímasetning því eitt af mínum fyrstu verkum var að fara á pöbb til að horfa á Spánverja taka Rússa í nefið. Hlakka til að sjá þá vinna Þjóðverja og geta fagnað Evrópumeistaratitli með nýjum nágrönnum.
Með sólarkveðjum úr 29 gráðu hita.
Halli del Sol
haralduring.blogspot.com
Bloggar | 27.6.2008 | 11:39 (breytt kl. 11:42) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Það er ekki nauðsynlegt að lesa þetta blogg.
http://haralduring.blogspot.com/
Haraldur Ingólfsson, ekki meir, ekki meir. Plíss.
Bloggar | 5.11.2007 | 20:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jæja Margrét mín, hvað eigum við eiginlega að gera til að vekja þessa síðu til lifsins ?? Kannski ekki neitt ég held bara ekki, við stofnðum hana bara í kringum þetta reunion og það var flott hjá okkur öllum. Hættum bara að ergja okkur á síðunni, kannski skrifum við endrum og sinnum eða skrifum ekki endrum og sinnum.. inná síðuna... Hvernig hefurðu það annars ertu búin að ná þér eftir bílslysið er ekki Ási örugglega góður við þig ?? Hvernig gengur þér í ræktinni.. nú þarf ég að vita allt, það er svo langt síðan við hittumst...
Annars, hef það gott í Afríku, gott veður alla daga og mér hefur sjaldan liðið betur, þrátt fyrir mikla og skemmtilega vinnu...
Bið að heilsa öllum í SVS 1982 annars er ég með mina eigin bloggsíðu núna, lærði svo mikið hér að blogga ... www.magnusg.blog.is hugsið ykkur maður er enn að njóta góðs af SVS .....
Hafið það eins og þið viljið ..... ....... .......
Magnús G..
Bloggar | 6.9.2007 | 15:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Jæja, elsku dúllurnar mínar ! Af mér er allt gott að frétta og Ása mínum líka. Ég ætla bara að láta ykkur vita að ég og Ási minn þessi elska erum búin að vera gift í heil 20 ár í dag sko 4.júlí (ég er svo mikil USA stelpa) !! Spáið í það, hann er búinn að þola mig öll þessi ár og gott betur en það !! Greyið Ási minn !!
- Ég var að tala við Óla Ara í dag, og hann var að láta mig vita af því að hann og fleiri skemmtilegir krakkar ætla koma vestur á næstu helgi !! Svo ég má fara að baka núna !! Svo að þeir sjái það hvað ég er myndarleg HÚSMÓÐIR !!
- Krakkar er ekki allt í lagi hjá okkur að BLOGGA SMÁ !! T.d. einu sinni í mánuði ... Ha.. sammála....
- Hvar er hún Dolla dúlludós, ætli hún sé enn að syngja og funda í sóknarnefndinni... Humm...spurning...
- Ætli Jói Val. sé á landinu... eða hann Maggi Guðjóns.
- Haraldur er örugglega enn að keppa í permannettinu... og Viðar Sæberg. hvað er að frétta af Bylgjunni.... Humhum....Lína hvernig gengur með sumarbústaðinn..
- Jæja gullin mín, ég bið að heilsa ykkur öllum og vonandi hafið þið það gott öll sömul.. Læt heyra í mér seinna ef ég fæ viðbrögð núna..
- Sjúbbídú!! Mbk.(Magga bloggar krúttlegasta)
Bloggar | 4.7.2007 | 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hollvinasamtök Bifrastar hafa opnað heimasíðu:
http://hollvinir.bifrost.is/default.asp?Sid_Id=29288&tId=99&Tre_Rod=&qsr
Ég hvet ykkur öll til að skrá ykkur inn á heimasíðuna:
http://hollvinir.bifrost.is/skraning
Kv./ÓA.
Bloggar | 19.6.2007 | 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sendi öllum innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn minn.
Óli Ara.
Bloggar | 16.5.2007 | 19:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Til hamingju með daginn öllsömul.
Og kærar þakkir fyrir síðast. Til viðbótar við aðra heilsubresti þá er ég nú kominn með króníska vöðvabólgu í andlitið, af því að brosa. Það hefur nefnilega ekki farið af mér brosið síðan á sunnudag. Og samstarfsfólk mitt hefur spurt hvort ekki sé allt í lagi, og mér vefst tunga um tönn. Jú víst er allt í lagi þannig séð. En hvernig getur maður útskýrt fyrir ókunnugum að maður sé að brosa af því að fyrir töttögöogfemm árum hafi ákveðinn skólafélagi manns mátað alveg nýja gerð af andlitsgrímum... eða af því að maður var að hugsa um júgursmyrsl... eða af því að manni datt allt í einu í hug þvagleggur. Þetta skilur náttúrulega enginn venjulegur maður. En það gerir ekkert, ég brosi bara áfram.
Þetta var algjörlega frábær helgi. Ég held ég hafi ekki skemmt mér svona vel í fimm ár! Og hvað var svona skemmtilegt??? Jú það voruð þið. Þið sem hjálpuðuð mér að rifja upp allar gömlu GÓÐU minningarnar, og þið sem gáfuð mér margar nýjar sem ég geymi til elliáranna við hliðina á þeim gömlu. Góður dagur er mikils virði, en minningin um hann er ómetanleg. Dagurinn líður hratt, en minningin lifir með manni og yljar manni æfina á enda.
207 group! Þið eigið skildar alveg sérstakar þakkir, fyrir að gefa okkur hinum tækifæri á að lífga gamlar og eignast nýjar minningar. Það er vinna að koma svona samkomu á koppinn og þið sáuð um hana. Hafið heila þökk fyrir. Vegna þessa ómaks ykkar erum við öll ríkari.
Kær kveðja til ykkar allra.
Gísli.
Bloggar | 1.5.2007 | 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
184 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar