- Jæja krúttin mín ! Haldið ekki að Manga tölvunörd sé ekki búin að setja inn myndina af dúllunum ( þetta er guðdómleg mynd).
- Svo lét ég líka inn mælingar sem stelpurnar í 2. bekk gerðu á strákunum haustið 1980 ! Þetta er bara snilld hjá mér !! Sjúbbídú !!
- Núna getur þúr Haraldur minn litla barn hætt að væla !! Lúbbídú for you !!
- Hvernig er það með hann Dodda ! Ætlar hann ekkert að blogga ? DODDI KOMM ON ! Þykir þér ekkert vænt um okkur ? Smá blogg !
- Bið að heilsa dúllurnar mínar. M.Scheving.
Bloggar | 21.4.2007 | 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
- Geðveikt gaman hjá mér núna !! Sjúbbídú !!
- Ég var að fá í hendurnar svo yndislega góða mynd af Óla Ara og Jóhannes Má síðan 1983 !! Hún verður frumsýnd á morgun vonandi tekst mér það !! Ef ekki, þá læt ég barasta Óla hjálpa mér. Hann var nú vanur að leysa öllu tölvuverkefni fyrir mig í skólanum þessi elska !
- Þetta verður bara gaman !! OOOOgggg ég hlakka svo til !!
- Haraldur litla barn, þú veist það að þú verður alltaf litla barnið mitt !! Krúttípúttið mitt !!
- Kveðja M.Scheving.
Bloggar | 20.4.2007 | 23:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Jæja þá er spennustigið að verða nánast óbærilegt. Ég verð nú nokkuð mest erlendis fram á fimmtudagskvöld þannig að ég blogga væntanlega ekki mikið meira.
Ég rakst hinsvegar á frétt í dag um það að Reynir Jónsson hefði verið ráðinn framkvæmdastjóri Strætó. Er það ekki okkar maður?
Verst að hann geti ekki mætt þannig að við gætum haldið upp á þetta með honum.
Hann hefði kannski líka getað reddað rútu undir liðið upp á Bifröst.
Mbk
JMJ
Bloggar | 20.4.2007 | 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hér er myndin Maggi. Var að vandræðast smá. Ætlaði bara að láta vita í sambandi við framtíðaráformin að ég er ekki orðinn fertugur enn svo ég hef enn tækifæri til að ná mínu markmiði. Myndin - merkilegt nokk - fór bara svona inn af sjálfsdáðum og vildi þar með segja: Ef þú ert ekki orðinn fertugur Halli, af hverju var þessi mynd þá tekin í fertugsafmæli yngsta bróður þíns?
Og Magga, konan mín, sem er reyndar sambýliskona því ég hef ekki haft dug í mér til að kvænast henni enn (hún er þarna í bakgrunni, aldrei langt undan) - hún ræður ekki yfir mér. Ég ákveð sjálfur hvort ég blogga eða ekki. Og þetta blogg er sko alveg til komið af mínum eigin hvötum en ekki vegna þess að þú eða Jóhanna eða Maggi eða einhver annar hafi skorað á mig að blogga. ...eða þannig...
Annars fékk ég þá villtu hugmynd að fara inn í leikhús hér á Agureyris, leigja mér eitthvert mjög eðlilegt gervi og búning, setjast upp í bíl síðdegis á laugardeginum, aka í Borgarfjörðinn og laumast til að vera gestur á Hótel Hamri á laugardagskvöldið - sleppa bara krullupartíinu og bruna svo aftur til Akureyrar fyrir fyrsta leik á sunnudagsmorgun kl. 8:30. Þið skuluð því líta vel í kringum ykkur og skoða aðra gesti hótelsins vel, jafnvel toga í skeggið á einhverjum til að athuga hvort það er ekta.
Nýtt framtíðaráform, ef mér skyldi ekki takast að drekka mig í hel fyrir fertugt: Að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í permanenti. ...og talandi um permanent og svoleiðis, hafiði velt því fyrir ykkur hver sá um að klippa mig á Bifrastarárunum? Þessar tvær myndir sem skarta mér sýna svo ekki verður um villst að þar hef ég ekki lent í skærum fagmanns... eða var þetta tískan þá?
Bloggar | 20.4.2007 | 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Jæja nú er bara rétt rúm vika í flottasta, skemmtilegasta, besta og ótrúlegasta REJÚNION sem haldið hefur verið. Ég löngu hættur að spá í það hverjir koma því það verður svo ótrúlega skemmtilegt hjá okkur sem mætum.... Við sem mætum viljið þið taka með ykkur hluti sem tilheyra tímabilinu okkar á Bifröst, s.s. eins og myndaalbúm, gömul skólablöð Ecce homo, Vefarann, Þefarann og svo framvegis og hvað eina sem minnir á Bifrastardagana... Þetta er mjög mikilvægt....
Hlakka hrikalega til að hitta ykkur öll....eftir átta daga...
Halli afhverju tókstu myndirnar af þér út aftur, sem voru inni á síðunni í 5 mínútur um daginn ??
Sjáumst
Magnús G..
Bloggar | 20.4.2007 | 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Jæja, dúllurnar mínar nú er komið sumar í mínu hjarta !! Djúbbídú !!
- Nú er bara níu dagar í hittinginn ! Vá, það er að koma að þessu. Díses kræst !!
- Ég er búin að vera svolítið dugleg að hringja í nokkra sem ætla ekki að koma og tékka á því hvort að það sé ekki enn von hjá okkur að fá fleiri !
- En ég lét það nú fylgja fyrst þeir ætli ekki að mæta þá yrðu þeir að blogga, svo ég bíð og bíð og bíð.
- Doddi, konan þín lofaði því að láta þig blogga !!
- Halli, konan þín lofaði því líka að láta þig blogga !!
- Viðar Sæbergs. þú LOFAÐIR ÞVÍ AÐ BLOGGA, annars klaga ég í Bylgju þú veist ?
- Dolla dúlludós þú átt eftir að blogga. Ég vona að Dolla fái hálsbólgu eða að kórstjórandinn fái flensu !! Núna, var ég ljót stelpa að segja svona !! Eennn ég er í hálfgerðu losti að hafa ekki hana hjá okkur !!
- Ég talaði við Guðbjart, það er svo mikið að gera hjá honum. Hann var nú ekkert búinn að kíkja inn á bloggsíðuna hjá okkur ! Ég húðskammaði hann fyrir það svo ég vonast nú til þess að fá smá blogg frá honum !
- Ég náði ekki í hann Þröst Óskars. ég held að hann hafi ekki þorað að svara mér, örugglega hræddur við gribbuna !! Sjúbbídú !!
- Jæja dúllurnar mínar hafið þið nú góðan sumardag !!
- Kossar og knús !! M.Scheving.
Bloggar | 19.4.2007 | 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á ferð um Austfirði um verslunarmannahelgina í fyrra rakst óþekktur ferðalangur úr hópi útskriftarnema SVS 1982 á óvæntan glaðning. Þannig háttar nefnilega til á Stöðvarfirði að þangað hafa ekki borist fréttir af andláti SÍS og því skartar gamla kaupfélagshúsið enn hinni sígildu hönnun, sjálfu sambandsmerkinu.
Óþekkur farðalengur
Bloggar | 17.4.2007 | 14:51 (breytt kl. 15:22) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heyriði mig nú elskurnar....... Það sjá allir ógildi þeirra raka sem sumir úr okkar ágæta hópi hafa haft í frammi að undanförnu vegna væntanlegrar fjærveru sinnar. Nú síðast voru þær meira að segja rakalaus. Hvort einhver spilar BOTSIU eða eitthvað annað.. þá getur sá hinn sami fundið betri tíma til þess en akkurat tímann sem við ætlum að hittast. Þá heyrði ég af einhverjum í dag sem forfallast vegna Gospel tónleika af öllu ég mundi frekar taka mark á hælsæri.... Jónast.... 25 ára brúðkaupsafmæli - Það er alveg ljóst hvar áherslurnar liggja hjá þér... við munum þetta... Það er ekki svo að skilja að þetta hafi verið ákveðið í gær....
Eins og maðurinn sem komst loksins til Jótlands sagði; .. ég fer ekki héðan fyrr en ég sé helvítis kubbana"; þá verður ekkert gaman nema maður sjái stelpurnar. Hvaða afsökun hefur Magga Geirs? Ég trúi ekki fyrr en ég tek á að Sveif og Sigurbjörg og Guðrún ætli að klikka. Dolla komdu þér úr þessari safnaðarnefnd - hefurðu hugleitt aðra trú. Maður kemst jú með helv. Kóraninn hvert sem er....
Hvað er með Dodda. Hefur einhver heyrt í honum. Jón Pétur - mér finnst þú kunna nóg....
Bjartur hvar ert þú þá þegar við þurfum mest á þér að halda.
Ég trúi því bara ekki að fólk taki þessu samkvæmi okkar svo léttúðlega að innan við tveir þriðju mæti.
Þetta hafði ég að segja í dag...
kv
jv
Bloggar | 16.4.2007 | 18:54 (breytt kl. 18:54) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vilt þú hafa skólamyndina svona ? Það er enn tími til að skrá sig á 25 ára ríjúníonið sem haldið verður að Hótel Hamri 28. apríl n.k. og fá andlitið aftur.
Bloggar | 16.4.2007 | 16:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
- Nú fer að styttast í hittinginn !! Oooog ég hlakka svo til !!
- Í þessari viku hef ég nú trú á að Drífa Skúla setji inn myndir !!
- Ég vona að fleiri eigi eftir að melda sig í stuðið hjá okkur, guð minn góður krakkar þið vitið ekki að hverju þið eruð að missa. Sko t.d. er Jói Vald. búinn að lofa að vera með góð skemmtiatriði !! Hann er svo frábær og stóð sig svo vel sem umboðsmaður okkar Lis !! Við urðum sko heimsfrægar allt honum að þakka !!
- Flottar myndinar hjá ykkur strákarnir mínir, þið eruð svo duglegir !! Ææii, hvað segi ég alltaf, já ég man það núna !! Sjúbbídú !!
- Ég á eftir að blogga meira í vikunni, nenni því ekki núna er þreytt eftir Rvk.ferðina.
- Bið að heilsa ykkur öllum dúllurnar mínar !! Knúsíknús !! Magga Scheving.
Bloggar | 15.4.2007 | 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
184 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar