Færsluflokkur: Bloggar
Arnar: Fara til Brasilíu og græða á bjálfunum þar.
Baldvin Albert: Að græða, mennta sig, ferðast og lifa lífinu.
Egill Össurar: Ná mér í duglega kerlingu sem getur unnið fyrir mér.
Elísabet: Fá mér nýjar buxur og stúdentspróf.
Eyjólfur: Komast í Garðyrkjuskólann og verða milið blómabarn.
Gísli Sig: Verða ríkur og fá sér nýjan Benz.
Guðbjartur: Að halda lífi.
Guðlaugur: Að eignast góða konu og góða hesta.
Guðmundur Atli: Að verða íslandsmeistari í þvi sem ég verð ekki heimsmeistari í.
G. Vald.: Að koma Sparisjóði Skagastrandar í þátíð.
Guðrún Árna: Klára stúdentinn og fara í endurskoðun í háskólanum.
Guðarún Jóns: Framtíðaráform óákveðin.
Hannes: Fara í farmhaldið og gera gagn í lífinu.
Haraldur: Drekka sig í hel um fertugt.
Ingólfur: Safna miklu og góðu skeggi.
Jóhannes Már: Framtíðin verður ágæt, þakka þér fyrir (verða ríkur).
Jónas: Að taka við Lenda í Bandinu og þá að sjálfsögðu að greiða út arð.
Kolbrún: Fara í framhaldið og hefja "búskap" með Guðrúnu Árna.
Kristrún: Mennta sig og ferðast.
Lísbeth: Búa í ferðatösku fyrst um sinn.
Magnea: Læra meira og hvíla sig í faðmi fjölskyldunnar.
Magnús: Mennta sig aðeins meira til að fá góða vinnu.
Margrét Geirs: Að verða eitthvað innan Sjálfstæðisflokksins.
Margrét Sch: Leigja íbúð í Reykjavík með Ása sínum og leggja stund á framhaldsnám.
Ólafur: Gera KHB stórt.
Reynir: Kaupa nýja Canon F1 myndavél.
Signý: Skoða restina af heiminum.
Sólveig: Að skoða þennan "heim" sem allir eru að tala um.
Svava Björg: Búskapur, búskapur, búskapur.
Viðar: Að vinna einkaframtakinu ómetanlegt gagn um ókomna framtíð.
Þórður: Klára skólann, fara til Hawaii í vor og láta hitt ráðast.
Þröstur: Klára framhaldið og verða mikill maður.
Úr Ecce Homo
ÓA.
Bloggar | 12.4.2007 | 23:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
.... að samvinnustefnan sé alþjóðleg hugsjón, sem fætt hefur af sér fjöldahreyfingu um viða veröld. Hún byggir á þeirri einföldu staðreynd að með samvinnu margra verður meira unnið en hinir sömu menn fengju áorkað hver fyrir sig. Klettur bifast ekki, þótt margir menn leggi við hann hver á fætur öðrum. Reyni þeir hins vegar við hann allir í senn og verði vel samtaka veittist þeim auðvelt að velta bjarginu.
Bloggar | 12.4.2007 | 23:26 (breytt kl. 23:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Við munum öll eftir miklu félagslífi á Bifröst, skipulögðu og óskipulögðu, reglubundnu og stjórnlausu. Mér skilst að íþróttir hafi líka verið stundaðar.
En ég vil gera listalífið að umræðuefni mínu og þá sérstaklega ljóð-og sönglist.
Ég myndi fjalla um ballet hérna en ég hafði of lítið af honum segja enda útilokaður með nafni úr dansflokknum. Þetta hefur reyndar setið í sálinni síðan og ég lagt áherslu á listrænan dans þegar ég er á almannafæri en ekki uppskorið mikið lof fyrir af einhverri óskiljanlegri ástæðu. Þannig að ég vil leggja áherslu á það sem ég hafði sjálfur kynni af.
Í fyrsta lagi var það auðvitað Bældir tónar sem varð til þegar sálfræðidoktornum verðandi var vikið úr kórnum sökum lagleysis. Eins og sönn stjarna gat hann ekki þar við unað og lét sér ekki nægja að komast í kór; hann stofnaði kór og gerðist kórstjóri. Margir vaskir sveinar (voru einhverjar dömur?) skráðu sig í kórinn og fengu að því liggur við kynferðislega útrás í kraftmiklum söng. Ef áfallahjálp hefði verið til í þá daga hefði henni þegar verið beitt á fórnarlömb kórsins. Best þótti kórnum að syngja við þar aðstæður þar sem áheyrendur komust ekki út svo sem í Norðurleiðarrútunni. Hápunkti náði kórstarfið þegar skólastýran á Varmalandi ætlaði að kæra hann fyrir misbeitingu á þjóðsöngnum og öðrum fögrum ættjarðarlögum. En það heyrðist ekki í henni fyrir skruðningunum sem mynduðust þegar öll helstu tónskáld þjóðarinnar snarsnérust í gröfum sínum.
Annað merkt framtak sem JMJ minnti mig á var ljóðabók sem fjögur ungskáld gáfu út undir dulnefnum (sem kemur kannski ekki mjög á óvart þegar ljóðin eru skoðuð). Þau afhentu öðru úngskáldi, Sigmundi Erni Rúnarssyni, ljóðabókina við hátíðlega athöfn og ferill hans eftir það ber viss einkenni þess að hann sé ekki búinn að jafna sig.
Ljóðabókin er ónefnd. Kannski hún hafi heitið Ónefnd. Skáldin kjósa að kalla sig ÓP, TVC, St. Joe og NN. Þau eru öll gríðarlega dramatísk og ljóðin einkennast af mikilli innri baráttu milli sjálfsupphafningar og sannfæringar um að kerfið muni gleypa þau. Heimurinn er vondur en skáldið æðislegt. Einnig er kalda stríðið að herja á hugarheima skáldanna. Hormónaflæði gæti líka hafa haft áhrif.
Hér eru nokkur dæmi.
Ljóðið Ljóð eftir ÓP. Það er svona:
"Mér finnst ég vera Superman.
Samt ætla ég ekki að bjarga heiminum."
Annað gott er Strengir eftir St. Joe.
"Komdu vina!
Sláðu á strengi mína.
Nei,
ekki misskilja mig.
Ekki segja falleg orð.
Ekki reyna að gleðja mig.
Nuddaðu læri mín.
Ég er með strengi."
Sameiginlegt ljóð TVC og St. Joe heitir Hnignun:
"Lampi á útopnu
reynir að gleypa epli.
Tveir drengir
misþyrma lampanum
og éta eplið.
Lampinn hverfur
í rautt hvolf.
Við sjáum hann ekki framar fyrir útbreiðslu kommúnismans.
Brátt verður Marx að ryki."
Ragnarrök eftir NN:
Fjólublátt ljós klýfur himingeiminn.
(Brimkló notar Bose)
Sundursker heiminn.
AM
Bloggar | 11.4.2007 | 11:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Vonandi hafa allir haft það gott um páskana. Hef ekki verið tölvutengdur frá því ég henti inn nýju myndunum sem ég fann óvænt við tiltekt í geymslunni rétt fyrir páska. Síðan þá hef ég verið mikið Norðlendis.
Við reynum að setja inn í þessari viku lista yfir alla sem mæta og pantanir á herbergjum þannig að allir geti staðfest. Síðan þurfum við að tímasetja heimsóknina upp á Bifröst.
Mbk.
JMJ
Bloggar | 10.4.2007 | 12:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Gleðilega páska elsku dúllurnar mínar !
- Nei, nei, hann Jói Vald er á landinu núna ! Hvað kemur til ?
- Jói Már hvað eru margir dagar til jóla ?
- Það er allt gott að frétta af mér, mín er sko í sumarbústaðnum sínum og hef það rosalega fínt !
- Hvað eru margir dagar í hittinginn ? Sjúbbídú, hvað ég hlakka til að hitta ykkur !!
- Lína, það er allt í lagi að blogga aðeins yfir páskana !
- Strákar hafið þið nokkur heyrt í honum Haraldi (litla barni) ? Ef svo er þá skilið þið kveðju til hans frá mér !!
- Jæja dúlludósirnar mínar, bið að heilsa öllum. M.Sch.
Bloggar | 6.4.2007 | 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ég rakst á allt þetta glæsilega og allavegana í endurminningunni, sérlega skemmtilega fólk! Það er greinilegt að mannskapurinn, þó örlítið eldri sé, er virkur, traustur og framsækinn enda gefur trommuleikarinn taktinn!! -- Ég geri örlitla athugasemd við ummælin um vaxtarleg mitt við myndina af granna kennaranum, því ég hef alltaf litið þannig á að ég væri bæði hár og grannur! -- og geri þar reyndar enn! Hagið ykkur vel á 25 ára júbílantamóti ykkar sem framundan er! "Því námið kennir meira en náttúran!
Hafið það alltaf sem best! Kæar kveðjur, Ísólfur Gylfi Pálmason
Bloggar | 3.4.2007 | 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
- Þakka þér Gísli Björn fyrir bloggið, afsakaðu böggið ég vissi að þetta með myndina úr partýinu myndi virka, þú ert semsagt sloppinn......
- Eru engir aðrir en við JMJ sem tókum myndir á Bifröst ?? ef einhverjir eiga myndir þá getum við tölvuséníin alveg skannað þær inn og sett á síðuna, Óli er með okkur í liði og reddar þessu...
- Halli krulla, til hamingju, þú ert semsagt kominn á toppinn og þarft því ekkert að mæta á mótið í lok Apríl og kemur bara með okkur á Bifröst, alltaf gott að hætta við toppinn sinn.....
- Jóhannes Vald ... hvar eru myndirniar þínar sem þú lofaðir, Magga Scheving man öll svona loforð, stattu þig og komdu með myndirnar annars..
- Það var hrikalega gaman í Los Angeles og ég skil ekkert í því afhverju við tókum ekki nótt þar á leiðinni til Hawaii um árið ...
- Nú fer að styttast í þetta Húllum hæ okkar og þvi miður eru 3 af þeim sem voru búnir að bóka sig búnir að forfallast síðan og það er hið versta mál, tökum nú höndum saman og sýnum hvað í þessum BEKK BÝR OG FJÖLMENNUM Á ÞETTA REUNION, ÞAÐ ERU ALLIR LIFANDI Í BEKKNUM ENNÞÁ OG HÖLDUM NÚ BARA UPPÁ ÞAÐ SEM SLÍKT.
- ÉG SKORA Á ALLA, ALLA AÐ MÆTA SEM MÖGULEGA GETA OG FINNA EINHVERJAR LÁSÍ AFSAKANIR.
- JÆJA GOTT Í BILI
- ÉG BIÐ AÐ HEILSA ÁSA OG SEGÐU HONUM AÐ VERA GÓÐUR VIÐ ÞIG OG HUGSA VEL UM ÞIG UM PÁSKANA OG SKAMMTA Í ÞIG PÁSKAEGGIN, SVO ÞÚ GETIR EITTHVAÐ Á SPINNING HJÓLINU Á HAMRI...
- GLEÐILEGA PÁSKA KÆRU BEKKJARSYSTKYN OG MÆTIÐ SVO ÖLL Á ENDURFUNDAHELGINA Í LOK MÁNAÐARINS .
- MAGNÚS GUÐJÓNS
Bloggar | 3.4.2007 | 13:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
- Vá, hann Haraldur (litla barn) fékk bronsið í Krullu !! Til hamingju elsku dúllan mín
- Ég óska honum Gísla Sig. til hamingju með afmælið þann 1.apríl s.l. Drengurinn á bara tvö ár í 50 !! He he !! Og ég sem hélt það að við værum nú bara rétt að skríða yfir tvítugt !!
- Bíddu! ekki eru þeir Maggi Guðjóns. og Eyjólfur hættir að blogga ?
- Ég talaði við Fúsa, hann lofaði mér að skella inn einu bloggi svona þegar að hann hefði tíma, hann sagði nú orðrétt: HVAÐ HELDUR ÞÚ AÐ MAÐUR HAFI NÚ ALLTAF TÍMA TIL AÐ LEIKA SÉR ALLTAF !! Ég held krakkar að hann sé að eldast greyið ! Svo notabene hann en nú karlmaður, og þeir geta nú ekkert gert nema eitt í einu (ekki satt strákar ?)
- Drífa Skúla er stikkfrí fram yfir páska ! Hún er að fara ferma kerlingargreyið á Skírdag !! Svo það er nóg að gera hjá öllum nema mér held ég
- Jæja krúttinpúttin mín, bið að heilsa ykkur öllum. M.Sch.
- p.s. Dolla dúlludós eitt blogg !!
Bloggar | 3.4.2007 | 11:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sæl veriði öllsömul. Gísli hérna, ekki þessi feiti í Mývatnssveit heldur hinn. Allavega, gaman að heyra og lesa frá ykkur. Ég er latari en allt þegar kemur að bloggi, sem sést á því að ég hef einungis einu sinni bloggað áður en kom að þessu bloggi. Allt of mikið að gerast, var að klára leiksýningu og fer að standa í flutningum með leikfélagið mitt núna í sumar (Leikfélag Kópavogs). Frábærar myndir sem búið er að setja inn :)
Gísli Björn
Bloggar | 2.4.2007 | 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
- Þær eru alveg hrikalegar flottar nýju myndirnar, sem þið voruð að setja inn strákar !
- Sérstaklega myndin af Óla Ara með slaufuna frá Kaupfélagi Héraðsbúa !
- Jæja dúllurnar mínar, ég er hætt við reiðilestur. Nenni því ekki !! Alltaf í góðu skapi !! Sjúbbídú !!
- Vonandi verðum við dugleg að blogga, þangað til að við hittumst !! Þá verður gaman !!
- Ennnnn Lína, er G.Vald. enn sofandi ???
- Kossar og knús !! Magga Scheving.
Bloggar | 31.3.2007 | 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
183 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar