Færsluflokkur: Bloggar

Í GÓÐU SKAPI EINS OG VENJULEGA !! (humm humm)

  • Jæja, nú er mín í stuði ligga ligga lá ! Ég var að tala við Drífu Skúla í gær og hún var koma úr skíðaferð !!
  • Það er alveg á hreinu að þið eigið eftir að heyra frá henni !!Grin
  • Ég er rosalega hissa á því að Árni Vaðlabóndi skuli ekki vera búinn að blogga !!
  • ÉG ÆTLA AÐ SKORA Á ÁRNA VAÐLABÓNDA AÐ BLOGGA STRAX Í DAG !!
  • Bið að heilsa ykkur öllum dúlludósirnar mínar.Kveðja Magga Scheving. 

DJÚPIR

Nei, nú verð ég að viðurkenna að þetta síðasta hjá þeim félögum Gísla og Arnari er nú orðið aaaðeins of djúpt fyrir migWoundering en skemmtilegt.   SM

 


Góður Arnar!!!

Það var yndislegt að lesa pistilinn þinn Arnar, ég sá skólaárin á Bifröst eins og svarthvítar litmyndir þegar ég las hann. Og það var strax augljóst hver var að skrifa, það skrifar enginn annar svona. Á ég þá ekki tóman djúsbrúsa einhversstaðar??? Svo skulum við átta okkur á því að ef Arnar hefði munað að setja "Arnar" undir pistilinn frá Arnari, þá væri sá Arnar sem skrifaði pistilinn frá Arnari ekki sami Arnar og sá Arnar var sem við kynntumst fyrir rúmum töttögofemmárum á Bifröst! Eða hvað?

Kær kveðja.

Gísli.

Ps. Hvað er með þig Nafni Björn, er ekki lengur hægt að ergja þig???


Mar grét Marg grét Margrét Scheving....

Ekki  fara í fýlu  Crying  púrraðu þig upp,  taktu törn  á  spinning  hjólinu eða  á pöllunum,  láttu Ása  sleikja úr  þér fýluna  og  byrjaðu að BLOGGA  aftur,  þú  ert  ennþá ókrýnd  drottning  bloggsins, en þú munt uppskera þína kórónu þegar þar að kemur.  ToungeSmileKissingHaloInLoveHeartWinkLoLCool Sjáðu  bara alla broskallana  sem byðja  þig um að  halda áfram.   Bið að heilsa  Ása  og biddu hann um að sleikja þig upp..  Magga mín  koma svo .....

MBK

MGuðjónsson

 


Með Baulu í ennisblaðinu

Kæru félagar,

ég sá hér tilkall til mín um að bæta í bloggsarpinn. Tilkallið var jú reyndar til miklu fleiri en þar sem ég var beðinn um það á þeirri forsendu að ég væri efstur á lista (sem hljómar alltaf vel og er nokkuð sem hefur fylgt mér nema þá helst þegar einhverjar Önnur eru að þvælast fyrir) þá er mér ljúft og skylt að stíga af hliðarlínunni, þjóta inn á völlinn, skora svo sem eitt sjálfsmark og láta tækla mig fyrst til hægri og síðan vinstri. Er þá fótboltalíkingum lokið í þessari færslu.

Mér finnst einkar skemmtilegt að sjá hvað fólk er fljótt að smella í sama gírinn og fyrir 25 árum síðan; eins og Dolla sagði hefur kímnigáfan síst af öllu skánað. Enda er góður brandari bara brandari sem verður fljótt óminnishegranum að bráð en lélegur brandari er sem uppvakinn nár sem sækir á mann í svefni jafnt sem vöku og það jafnvel mörgum árum eftir að hann var sagður; þar sem ég sporðrenndi Lion Bar eftir Lion Bar var mér boðið upp á meira Lion Bar, "Nari" og hef heitið það síðan.

Það er ekki annað hægt að segja en að þessi lífsreynsla sem varð til á þessari örstuttu dvöl úti í sveit hafi brennt mark sitt á sál okkar eins og værum við þátttakendur í Survivor eða sögupersónur í Lost. Þarna mótaðist samfélag með sínu eigin gildismati og það bergmálar enn (bergmálar enn(berg... ok- sjáið þið hvað ég á við?)).

Frá því við vorum hnípnir unglingar (á ýmsum aldri) reknir með harðri hendi af gæsagangsmarserandi sængurþjófum niður að einhverri tjörn í hrauninu mitt á milli Baulu og Borgarness til þess tíma að við stunduðum þá íþrótt að tæma meltingarveginn efri leiðina af einskærri gleði undir pálmatré í paradís, frá grýttri og rigningarsveittri sveitinni til suðrænna gullstranda, frá ámátlegum ölvunartilraunum með pilsner í gufu til kokkteila undir Diamond Head; það má sjá ákveðna slóð liggja úr hreinsunareldinum til himnaríkis.

Og það sem gerðist á leiðinni er það sem skiptir máli þó enginn hafi sömu sögu að segja; fyrsti brennivínssopi ævinnar fyrir utan hliðið í gulllitum Mitsubishi Colt; helskakkir pönkarar í bestu hljómsveitum landsins í heimsókn; síðustu upplýstu diskógólf landsins í Reykjavíkurborg; Hooked on Classics, helvítis Hooked on Classics; stanslausar harmonikkurúllirallirútuferðir í Hrútafjörð í einhverjum mér gleymdum en örugglega íþróttatengdum erindagjörðum; Norðurleiðarútunni breytt í Guantanamo með meintum fagurgala; fallbyssuleikir í Commodore Pet(minni: 16K); ég man greinilega eftir öllu nema því sem kennararnir reyndu að uppfræða mig í. Þó kunni ég einu sinni að þylja upp nöfn allra kaupfélaga réttsælis og rangsælis hringinn kringum landið; og er það miður að það skuli hafa gleymst. Það er aldrei að vita nema það gæti komið sér vel.

Þó spyr ég mig þegar ég lít á þessar myndir: "Hvaða börn eru þetta?"

Jafnvel þeir sem mér fannst vera öldungar og hoknir af elli þegar ég var sextán ára birtast á þessum myndum eins og þeir þurfi fullorðna í fylgd með sér á bíó; æskuljóminn blindar.

Best að ég hætti þessu þvaðri; það verður gaman að sjá ykkur. Síðasta uppákoma heppnaðist vel, sérstaklega yljaði það þá mér um hjartaræturnar að sjá myndir af mér löngu gleymdum páfagagaukum.

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Er til bloggæði sbr. málæði.

Ég er að hugsa um að segja ekkert meira fyrr en mesta lyfjaæðið er runnið af Margréti.

JMJ


Plííís Magga ekki hætta núna...

Kæra Margrét Sc.

Velkomin heim af deildinni, vonandi ertu á batavegi... þó að það sjáist ekki á blogginu frá þér. En viltu samt ekki hætta alveg strax, ég má ekki til þess hugsa að jólakveðjurnar frá JMJ verði allsráðandi aftur. Gerðu það haltu áfram, við skulum öll vera svo góð við þig og gera allt sem þú biður okkur.

Og þið hin, veriði nú dúllur og takiði gleðipillurnar ykkar og skrifiði nokkur orð, ha, fyrir Möggu sína, ha, svo hún verði ekki þunglynd, því hún er ennþá verri þannig. Bara jólakveðju eða eitthvað, ha, geriði það...

Kær kveðja.

Gísli.

Ps. Hinn heitir Gísli Björn!


ÉG FÆ ENGIN VIÐBRÖGÐ OG ER HÆTT AÐ BLOGGA !!

  • Ég var að kíkja inn á síðuna og klukkan 19.00 voru 53 búnir að kíkja á síðuna og bara bloggkóngurinn búinn að senda pistil ! Þetta er ekkert grín, svo ég er farin aftur í frí og rosalega fýlu !!Angry Kveðja frá Möggu Scheving sem er í svo rosalegri fýlu að það er ekki hægt að vera nálægt henni.AngryAngryAngryAngry

Jísus kræst, ertu að klikkast kelling......

  • Það er víst best að hafa þetta þetta í svona punktum eins svo maður verði ekki skammaður fyrir stílleysi  í uppsetningum
  • Ég þakka nú  guði fyrir  að vera  á  góðri  næringu þegar maður þarf að fylgja þér eftir
  • Annars er ég rosalega ánægður með hvernig þú tekur á liðinu, svo jákvæð og  hvetjandi, ég er viss um að allir blogga í dag,  enda enginn maður með konum  nema hann bloggi hér ..
  • Marga laxa, það man ég ekki  7 eða 8 á  stöngina  og ég 3 held ég af því, við veiddum bara á flugu ....................
  • Þetta er annars bráðskemmtilegur strákur sem þú átt og ótrúlega líkur mömmu sinni,  ég  hef aldrei séð pabba hans þannig að ég veit ekki hvort hann er líkur honum ....
  • Þú  veist það Magga mín að þú getur alltaf fengið Herbalife pillur og duft hjá mér bara þegar þú vilt og réttir upp litla fingur, þá mæti ég með skammt fyrir þig .. þú verður bara meiri dúlla sjáðu ....
  • En  ertu  ekki örugglega að hressast ... ég  veit reyndar ekki við hverju má  búast frá þér ef þú bætir miklu við þig......
  • Magga  haltu áfram á sömu braut,  djöflastu á liðinu og  hættum ekki fyrr en  allir eru  búnir   að  blogga ..  svo krínum við bloggmeistara bekkjarins, svona eins og Date drottningin og kóngurinn voru krínd...á Bifröst..
  • Djöfull hlakkar mig til að  hitta allt þetta lið,  kanntu ekki einhver ráð með að ná  á staðinn, þeim sem ætla að skorast undan.  
  • Ég  var búinn að  spá í t.d. ef við fáum einhvern í að fingurbrjóta Árna á  Vöðlum þá getur hann ekki spilað á  ballinu hjá  Atla og þá verður að fresta ballinu og þeir eru báður lausir  um helgina sem við verðum á Hamri.. Hvernig líst þér á  þetta ??
  • Ég  var líka að spá   í  hvort við ættum ekki að láta ræna Halla  Krullu á  Permanentmótinu á Akureyri og flytja´ann í  böndum suður í Borgarfjörð,, þetta yrði alla vega besta auglýsingin  sem "Krullumótið gæti fengið" 
  • Jæja nokkuð gott í dag,  endilega ef þið eigið skemmtilegar  myndir,  skannið þær og setjið inná síðuna....
  • Bið að heilsa  Ása og minntu hann á að vera góður við þig, bið líka að heilsa syni þínum , hitti hann vonandi aftur í Miðfirðinum  eða  við aðra skemmtilega á...
  • Koma  svo   blogga meira,  þetta  er spurningin um að vinna heldur bara vera með
  • Magnús G.Cool

ÞIÐ MUNIÐ ÞAÐ AÐ LESA ÞETTA ALLT !!

  • Góðan dag góðir hálsar og aðrir hálslausir !!
  • Nú byrjar lesturinn !!
  • ARNAR, þú ert fyrstur á listanum !! Hvar ertu ? Sko blogga strax !!
  • VAÐLABÓNDI, þú hefur nú ekki hingað til haldið kjafti ! Blogg strax í dag !!
  • ATLI, bíddu, bíddu og ég sem ætlaði að láta þig hanna hjá mér garðinn ! Ertu týndur ?
  • BALDVIN, þú sem varst pabbinn í hópnum ! Hvar er ábyrgðartilfinningin ?
  • DRÍFA SKÚLA. þú sem ert í sama byggðarlagi og ég ! Það hefur nú ekki hingað til þurft að reka á eftir þér að senda póst !! Skammastu þín !!
  • BETA, hver var alltaf fyrst að skrifa sig á ef það átti að fara að djamma ? BLOGG STRAX Í DAG !!
  • EGILL Ö, þú sem býrð á Patreksfirði, hvað er að gerast þar ?
  • EYJÓLFUR skólastjóri það dugar sko ekki að blogga 1x !! Vertu duglegur !!
  • G.VALD., ég held að þú sért enn SOFANDI ?
  • GÍSLI SIG. fyrrverandi formaður bind........ Ég þarf ekkert að tuða í þér, ég veit að þú átt eftir að standa þig vel í blogginu !! En eitt enn !! Var það hjá Viggu sem þú byrjaðir að testa á vínanda ?
  • GÍSLI BJÖRN, hvar ertu ?
  • GUÐBJARTUR Flateyrartöffari, hvað er ekki hægt að senda okkur nokkrar línur ?
  • GULLI ANTONS., þó að þú sért löngu fluttur frá Mýrdalnum, þá er nú alveg hægt að blogga frá Hvanneyri ! P.s. ég frétti af þér í mat hjá tengdafólkinu mínu !! Þú ert svo mikil dúlla !!
  • GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR, hvað er að gerast með þig, þarf ég að mæta í Hreyfingu eða Húsakaup til þess að láta þig blogga !! KOMM ON !!
  • GUÐRÚN JÓNS., þú sem varst svo stillt og prúð. Það er nú í lagi að koma smá blogg ! Finnst þér það ekki ?
  • HANNES GARÐARS., hvað ertu hættur að öskra ? Ertu orðinn mállaus ? eða hvað ?
  • LITLA BARN HARALDUR, þið Straumfjarðarbræður eruð nú frægir fyrir það að tala mikið ! Hvað er konan þín búin að ala þig svo vel upp að þú ert hættur að tala ?
  • INGO SÁLFRÆÐINGUR , það er nú allt í lagi að gefa nú bekkjarfélögunum þínum nokkrar faglegar ráðleggingar hvernig við eigum að haga okkur ! Þú sem varst kosinn SJARMÖR ÁRSINS ! Er svona langt til Ameríku ?
  • JMJ HÆTTU MEÐ ÞETTA JÓLAKJAFTÆÐI ! Ég læt þig éta lyftingarbekkinn sem þú ætlar að mæta með á hótelið í vor !! He he !!
  • JÓI VALD., þú ert rola ! Að vera ekki búinn að setja myndinar inn sem þú þykist eiga ! Sko þú átt að blogga á hverjum degi þegar þú ert á landinu !!
  • JÓNAS, þú sem áttir alltaf flottasta kaggann ! Hvað ertu fluttur í bítlabæinn ? Hvað er að frétta af nýgifta manninum honum Rúna Júll. ?
  • JÓN PÉTUR fyrrverandi sveitarstjóri ! Ertu bældur í Borgarnesi ?
  • STRÚNA FRÆNKA, þó að þú búir í Noregi, þá er nú allt í lagi að blogga 1x í viku !! 
  • KOLLA HANS SIGURBERGS, ég sem fór í brúðkaupsferð til þín !  Það er sko ekki nóg að blogga 1x !! Skamm !!
  • LIS, þó að þú sért orðin amma, þá er nú í lagi að blogga og peppa upp liðið með mér !! Mér sýnist nú ekki veita af því !!
  • MAGGÝ SÚÐAVÍKURGOÐ, sko þó að þú verðir í London þessa helgi !  Þá ert þú ekkert í fríi frá blogginu !! BLOGG STRAX Í DAG !!
  • MAGGA GEIRS., þú sem varst svo fjörug á Bifröst ! Hvað er að gerast með þig núna ? Blogg strax !!
  • MAGGI GUÐJÓNS., þú skalt bara borða herbalife pillur !! Ég skal taka þig í bekkpressu !! He he !! Ein spurning, hvað veiddir þú marga laxa í Miðfirðinum ? (Friðbjörn bað mig að spyrja )
  • ÓLI ARA, þó svo að þú átt allt hrós skilið að hafa hannað þessa síðu. Þá ertu þú ekki of góður að setja inn smáblogg !! (ekki satt ? )  
  • REYNIR JÓNS., er búið að finna hann strákar ? Ég ætla ekkert að skamma hann ! Hann veit ekkert af því að við ætlum að hittast !!
  • FÚSI ALMARS., ÞAÐ ER SKO EKKERT NÓG AÐ SKRIFA 1X Í GESTABÓKINA !! Núna í dag skaltu koma með blogg ! Því annars rota ég þig !! He he !!
  • SIGNÝ MÍN, ég ætla ekkert að skamma þig, þú stendur þig vel !! En þú mátt nú alveg koma með meira blogg !!
  • SIGURBJÖRG, ég sem óskaði þér til hamingju með daginn um daginn og þú ert ekkert búin að þakka mér fyrir það (skamm !!) SKO BLOGG STRAX Í DAG !!
  • DOLLA, þú ert sko dúlludós !! Stendur þig best af þessum ÞINGE..... í blogginu ! ÁRAM DOLLA !!
  • SVEIF þú sem varst svo dugleg í skólanum og samviskusöm ! Ertu orðin kærulaus í dag ? Núna heimta ég blogg frá þér strax í dag !! EKKERT ANNAÐ SKO !!
  • VIÐAR, það er ekkert blogg í gangi frá þér ? Átt þú ekki ættir þínar rekja til Hellissands ? KOMM ON !! BLOGG STRAX Í DAG !!
  • DODDI, hvar ertu ? Ertu í einhverri skotgröf í útlöndum ? Hvað er í gangi ? Svar óskast strax í dag ! ÞVÍ ANNRAS LÁTUM VIÐ LÝSA EFTIR ÞÉR ELSKU KALLINN MINN !!
  • ÞRÖSTUR , bíddu bíddu minn fluttur til Ísafjarðar, Hornfirðingurinn sjálfur. Það er skelfilegt því eins og þú sérð á blogginu þá kunna þér ekkert að blogga frá Vestfjörðum ! (ekki satt) Þú skalt nú reyna að afsanna það !!
  • JÆJA NÚ ER MÍN BÚIN AÐ TAKA GÓÐA TÖRN OG ÉG ÆTLA EKKERT AÐ BLOGGA FYRR EN ÉG SÉ EINHVER VIÐBRÖGРFRÁ YKKUR !!
  • BIÐ AÐ HEILSA YKKUR ELSKU KRÚTTIN MÍN OG DÚLLUDÓSIRINAR MÍNAR. KVEÐJA M.SCHEVING.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband