Ísólfur mótmælir

Ég rakst á allt þetta glæsilega og allavegana í endurminningunni, sérlega skemmtilega fólk! Það er greinilegt að mannskapurinn, þó örlítið eldri sé, er virkur, traustur og framsækinn enda gefur trommuleikarinn taktinn!! -- Ég geri örlitla athugasemd við ummælin um vaxtarleg mitt við myndina af granna kennaranum, því ég hef alltaf litið þannig á að ég væri bæði hár og grannur! -- og geri þar reyndar enn! Hagið ykkur vel á 25 ára júbílantamóti ykkar sem framundan er! "Því námið kennir meira en náttúran!

Hafið það alltaf sem best!  Kæar kveðjur, Ísólfur Gylfi Pálmason

 

 

 


Nú eru að koma Páskar, hvar er JMJ......

  • Þakka  þér  Gísli  Björn fyrir bloggið,  afsakaðu  böggið  ég  vissi  að þetta með  myndina úr  partýinu myndi virka,  þú  ert  semsagt  sloppinn......
  • Eru  engir  aðrir  en  við  JMJ  sem  tókum myndir á  Bifröst  ??  ef  einhverjir  eiga  myndir  þá  getum við  tölvuséníin  alveg  skannað þær  inn og  sett  á síðuna,  Óli er  með okkur í liði  og  reddar  þessu... 
  • Halli  krulla,   til hamingju,  þú  ert  semsagt  kominn á  toppinn og  þarft  því  ekkert að mæta  á  mótið í  lok Apríl og kemur bara með  okkur á  Bifröst,  alltaf gott að hætta  við toppinn  sinn.....
  • Jóhannes  Vald ...   hvar  eru  myndirniar þínar sem þú lofaðir,  Magga  Scheving  man  öll  svona loforð,   stattu  þig  og  komdu með myndirnar annars.. 
  • Það  var  hrikalega  gaman  í  Los  Angeles  og  ég  skil ekkert í því afhverju við tókum ekki  nótt þar á leiðinni til Hawaii um árið ...
  • Nú fer  að styttast í  þetta Húllum hæ  okkar  og  þvi  miður eru  3 af  þeim sem voru búnir að bóka  sig  búnir  að forfallast síðan  og  það er  hið  versta mál,  tökum nú  höndum saman og  sýnum  hvað í þessum BEKK  BÝR  OG  FJÖLMENNUM  Á  ÞETTA REUNION,  ÞAÐ ERU ALLIR  LIFANDI Í BEKKNUM  ENNÞÁ  OG  HÖLDUM NÚ BARA UPPÁ  ÞAР SEM  SLÍKT. 
  • ÉG  SKORA  Á  ALLA,  ALLA  AР  MÆTA  SEM  MÖGULEGA  GETA  OG  FINNA  EINHVERJAR  LÁSÍ   AFSAKANIR.
  • JÆJA  GOTT Í  BILI
  • ÉG  BIÐ AÐ HEILSA  ÁSA  OG SEGÐU HONUM AÐ VERA GÓÐUR VIÐ ÞIG OG HUGSA VEL UM ÞIG UM PÁSKANA OG  SKAMMTA Í ÞIG PÁSKAEGGIN,  SVO ÞÚ GETIR  EITTHVAÐ Á  SPINNING HJÓLINU  Á  HAMRI...
  • GLEÐILEGA  PÁSKA  KÆRU BEKKJARSYSTKYN    OG   MÆTIÐ SVO ÖLL  Á  ENDURFUNDAHELGINA  Í  LOK MÁNAÐARINS  .
  • MAGNÚS GUÐJÓNS Tounge

TIL HAMINGJU LITLA BARN !!

  • Vá, hann Haraldur (litla barn) fékk bronsið í Krullu !! Til hamingju elsku dúllan mín Wink
  • Ég óska honum Gísla Sig. til hamingju með afmælið  þann 1.apríl s.l. Drengurinn á bara tvö ár í 50 !! He he !! Og ég sem hélt það að við værum nú bara rétt að skríða yfir tvítugt !!
  • Bíddu! ekki eru þeir Maggi Guðjóns. og Eyjólfur hættir að blogga ?
  • Ég talaði við Fúsa, hann lofaði mér að skella inn einu bloggi svona þegar að hann hefði tíma, hann sagði nú orðrétt: HVAÐ HELDUR ÞÚ AÐ MAÐUR HAFI NÚ ALLTAF TÍMA TIL AÐ LEIKA SÉR ALLTAF !! Ég held krakkar að hann sé að eldast greyið ! Svo notabene hann en nú karlmaður, og þeir geta nú ekkert gert nema eitt í einu (ekki satt strákar ?)
  • Drífa Skúla er stikkfrí fram yfir páska ! Hún er að fara ferma kerlingargreyið á Skírdag !! Svo það er nóg að gera hjá öllum nema mér held ég Smile
  • Jæja krúttinpúttin mín, bið að heilsa ykkur öllum. M.Sch.
  • p.s. Dolla dúlludós eitt blogg !! 

Bloggfærslur 3. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband