Flutt úr gestabók, en þessir vitleysingar kunnu ekki að blogga.

Sorry þetta átti að vera AFMÆLI AFMÆLI !!!

Svona er að flýta sér! Sjáumst Magga Scheving.

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-02

SVS 1982

AMÆLI ! AMÆLI !!

Elsku Sigurbjörg! Innilega til hamingju með daginn !! Mín bara orðin 40 + einhvað !! Hafðu góðan dag. Bestu kveðjur Magga Scheving.

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-02

SVS 1982

Sko Maggi minn !

Ég held að það sé nóg fyrir þig að labba bara Sambandshringinn var það ekki litli og stóri .... einhvað ? Þið rétt ráðið því að gera mig geðveika!! Ég sendi bara elsku Ása á ykkur !! Þið vitið það að ég á að hafa það rólegt!! Svo þið skulið taka tillit til þess! Jæja,nóg um það. Eru einhver fleiri forföll hjá dúllunum mínum ? Það er bara enginn sem svarar mér nema þið klikkhausarnir ykkar!! En þá veit maður hverjir eru vinir sínir ekki satt ? 1000 knúsar!! Magga Scheving

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-02

Þú færð knús og fyrstu myndina á vefinn.....

Jæja Dúllan mín, þakka þér fyrir þessu fallegu orð, ég bíð spenntur eftir að fá knúsa þig að spinning hjólinu, sem ég efast ekki um að þú takir með þér, fyrst að Ási keumur ekki. Ritsjórnin er búin að taka ákvörðun um að fyrsta myndin sem birtist verður af þér og hún er geðveik.. og við óttumst svoldið að þú verðir geðveik þegar myndin er búin að birtast, en við ætlum samt að taka sénsinn, sennilega birtist myndin á laugardag síðla, eða árdegis á sunnudag, vertu tilbúin...!!!!!!!!!! Svo biðjum við að heilsa Ása af því að hann er til, getur þú sent okkur mynd af honum ???

Óskráður (Maggi Guðjóns) skrifaði: 2007-03-02

SVS 1982

Hey þú ógeðslega töff ég er að tala við þig ! Maggi Guðjóns.!!

Hvað ertu að segja ? Að elsku Ási minn sé ekki til, þessi engill sem gerir allt fyrir mig!! Honum er þrælað svo út elsku kallinum mínum! Fær aldrei frí á sjónum svo náttúrlega á fullu í pólitíkinni(það er skemmtilegasta tík sem til er) einhver verður að vinna fyrir heimilinu, því MÍN er sko góð að spreða! Jæja ég ætlaði ekki að skrifa nema einn pistil á dag, en eins þið vitið þá hef ég alltaf svarað fyrir mig og hætti því örugglega aldrei!!He,he,he!! Bestu kveðjur elsku dúllurnar mínar!!! Magga Scheving. p.s. ég hringdi í Kollu og skipaði henni að skrifa í gestabókina! Svo ég bíð og bíð og bíð! Stelpur (ekki kerlingar eins og Maggi Guðjóns sagði) KOMM ON !!!

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-01

Enn hressist Magga SKE

Rosalega er ég ánægður með þessi hressilegu skrif þín Magga mín, ætlarðu virkilega að skilja Ása eftir heima einu sinni enn, Ég bara spyr er þessi Ási til ???

Óskráður (Maggi Guðjóns) skrifaði: 2007-03-01

SVS 1982

Jæja Jói minn Már alltaf að pirra mig !!

Þú ert ekki í lagi, hver var fyrst að skrifa í gestabókina og hvað sagði ég þar ? Ég og Lis ætlum að vera saman í herbergi þessa helgi. Svo aumingja Ási minn og Gummi hennar Lis verða heima að gæta bús og barna !! He he !! Ég skal lofa að koma með mynd af honum Ása mínum. Ef þú heldur áfram að minnast á hvað eru margir dagar til jóla þá flippa ég yfir!! HÆTTU,en segðu mér hvað eru margir dagar þangað til að við hittumst ? Jæja nóg um það!! Nú ætla ég að byrja að tuða!! Þessa sömu helgi sem við ætlum að hittast verður Maggý tyggjótey... úti í London ! Hún ætlar að skilja okkur eftir mig og Lis eftirlitslausar, við sem vorum vanar að vera 3 í herbergi 206. Það vantar alla ábyrgð hjá henni gagnvart okkur því hún er náttúrulega elst og á að bera alla ábyrgð á okkur!! Hvernig ætli þetta endi allt saman! Svo kemur ekki hún Rúna frænka mín, ég er farin að sakna hennar en kannski hitti ég hana á ættarmóti í sumar! En hún gæti nú samt komið bara smá stund! PLÍS!! Jæja, svo frétti af því að Doddi (Þórður Eggert Viðarsson) ætli ekki að koma! Bíddu,bíddu er þetta rétt! Hvað er að gerast með okkur!! Erum við svona leiðinleg að þið nennið ekkert að hitta okkur ? Þið skulið sko svara mér í gestabókina!! Því annars tuða ég og tuða út í eitt!! Jæja dúllugullmolarnir mínir kossar og knús og ég ætla að minna ykkur á að það eru 298 dagar til jóla! Kveðja Magga Scheving.

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-01

SVS 1982

Jóla hvað

Ég vil líka taka það skýrt fram að eftir að kvörtun barst frá Margréti þá hef ég ekki minnst á það einu orði að það eru 298 dagar til jóla. Þetta sýnir bara hvað ég tek mikið tillit til hennar í þessu ástandi. JMJ

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-01

SVS 1982

Seglin Rifuð.

Þú stendur þig vel Magga mín. Þú svarar hinsvegar engu um það hvort þú mætir með Eyrnaseglin. JMJ

SVS 1982 skrifaði: 2007-03-01

SVS 1982

Hvernig stendur á því að Óli Ara og fleiri skrifa ekki í gestabókina ?

Elsku dúllurnar mínar!! Hvað er að gerast nennir enginn að skrifa í gestabókina, bara ég og nokkrar dúllur! Jæja, nú er best að tuða!! Á ég að trúa því Guðrún Árnadóttir að þú ætlir ekki að vera með okkur allan tímann ? Þú verður bara kyrrsett og bundin niður hjá okkur (kannski vaknar Grábrókargengið og festir þig). Svava,Sigurbjörg og Guðrún ætlið þið ekki að mæta? Þið þurfið sko að vera löglega afsakaðar það er sko ekkert annað tekið til greina ? Eins og ég hlakka til að hitta ykkur og halda virkilega gott heimavistarpartý!! Spáið í það hvað þið missið af miklu! T.d. mætir örugglega Jói Vald. í leðurdressinu sem sló í gegn síðast! Maggi Guðjóns með herbalifepillur sem nesti, svo heyrist mér Jóhannes Már ætli að mæta með heilan lyftingarbekk svo þetta verður gott prógram hjá þeim. Jæja nú er ég hætt að tuða en ég kem aftur á morgun og þá verður einhver annar tekinn í gegn? Bíðið spennt elsku dúllurnar mínar. Bið að heilsa ykkur öllum og farið vel með ykkur. Kossar og knús! Magga Scheving.

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-28

Lestrarhestafélagið

Ég skora á aðra meðlimi Lestrarhestafélagsins að tilkynna þátttöku hið snarasta. Ég mæti og hún Lína kemur sko með mér, G.Vald

Óskráður (G. Vald) skrifaði: 2007-02-28

Elsku hjartað mitt

Mikið er ég feginn að þú ert að hressast og hjartveikin að rjátlast af þér, nú fer alveg að verða búið að ritskoða þessar myndir þannig að þær birtast ein af annarri og ég skal lofa þér Magga mín, hjartað mitt, að fyrsta myndin verður af þér, bara af því að þú ert svo þolinmóð að bíða og svo sendir þú líka skemmtilega pistla inní gestabókina, ég er farinn að halda að þessar kerlingar eins og Drífa, Guðrún Árna, Beta og hvað þær heita allar hljóti bara að vera komnar á elliheimili, fyrst þær styðja ekki við bakið á veikri bekkjarsystur sinni í skrifum hér á bloggsíðunni. Farðu nú vel með þig Magga mín og láttu þér batna.. Við biðjum að heilsa Ása, kannski sýnir þú okkur hann núna eftir 25 ár...

Óskráður (Magnús G) skrifaði: 2007-02-28

SVS 1982

Jæja bara duglegir strákar ! Allt í vinnslu, hvað skyldi það taka langan tíma ?

Elsku dúllurnar mínar ! Er það rétt að þú Árni Brynjólfs. Vaðlabóndi ætlir ekki að mæta með nikkuna? Æ dónt bí líf itt !! Hvað ertu að pæla ? Passaðu þig ég á eftir að leggja þig í einelti og líka litla barnið hann Harald!! Takk Maggi minn og hugsa hlýtt til mín! Ég er sko öll að hressast eða þannig sko! Jói minn það er sko alltaf logn í Rifinu og hættu að gera at í Ása mínum hann er svo mikið gull!! Jæja dúllurnar mínar, ég segi góða nótt,þið fáið pistil á morgun!! p.s.Á ég að vera eina stelpan sem skrifar í gestabókina? Komm on stelpur! Kossar og knús! Magga Scheving sem er að reyna að hætta að vera hjartasjúklingur!!

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-27

Elsku Dúllan mín

Magga mín hafðu þolinmæði með okkur þessum rolum, það er verið að photoshoppa þetta allt til, það eru geðveikar myndir af þér m.a. í ótrúlegum ... og ég er að berjast við strákana um að birta ekki allt strax, en óskir þínar verða uppfylltar dullan mín.. og láttu þér svo batna og líða vel, við sendum þér hlýjar kveðjur með ósk um góðan bata..

Óskráður (Magnús G ) skrifaði: 2007-02-27

SVS 1982

Bekken

Ég skal hinsvegar mæta og taka með þér bekkinn. Þ.e. lyftingabekkinn sem endar væntanlega með því að þú tekur Bekken. Láttu ekki Óla vera að ljúga svona í þig. Þú veist að ég er bara svona stórbeinóttur. Sérstaklega er fram-magabeinið stórvaxið. Þetta er ættgengur andskoti. Mbk. JMJ

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-26

Ritskoðun.

Magga mín. Dettur þér virkilega í hug að einhver karlmaður með snefil af sjálfsvirðingu mæti í spinning. Eina ástæðan fyrir því að Ási fer með þér í spinning er sú að hann getur ekki hjólað úti, vindurinn tekur svo mikið í eyrun. Því miður komust myndirnar ekki í gegnum ritskoðun en vonandi tekst okkur að photosjoppa þær þannig að þær geti birst opinberlega. Hörður ætlaði að birta slidesmyndir af Möggu Geirs en fann þær ekki. Hann er orðinn svo kalkaður kallinn.

Óskráður (Jóhannes) skrifaði: 2007-02-26

SVS 1982

HVAR ERU MYNDIRNAR ?????

Jæja,elsku dúllurnar mínar ætlið þið ekki að fara að setja myndirnar inn ? Ég er orðin svo spennt að ég get varla beðið !! Þú ert ekki búinn að svara mér Jóhannes Már hvort þú ætlar að mæta í spinning ? Eða ertu algjör kjúklingur he he !! Hættu með þetta jólakjaftæði þú átt að telja dagana þangað til að við hittumst Sammogengið! Svo á ég nú eftir að taka hann Harald í gegn ef að hann ætlar að voga sér að skrópa (skammastu þín ef þetta er rétt). Bíddu bara litla barn eins og ég kallaði þig alltaf!! Nú er ég hætt í bili en ég kem aftur og þá fær einhver tuð frá mér, þið munið það að ég breytist seint! Kossar og knús dúllurnar mínar! Kveðja Magga Scheving

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-26

SVS 1982

Rollur,

Mér fannst Maggi alltaf meiri svona Rolla. Allavega þegar hann fékk sér Permið. Mbk. JMJ

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-26

SVS 1982

Mættur

Tók mér smá helgarfrí. En ég get fullvissað ykkur um að það eru einungis, og ég endurtek einungis 301 dagur til jóla.

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-26

SVS 1982

Maggi Guðjóns,Jóhannes Már og Óli Ara þið eruð nú meiri rolurnar!!

Hvar eru myndirnar sem þið ætlið að skanna inn ? Nú er sko mín mætt eftir sjúkrahúslegu og það verður enginn látinn í friði hjá mér!! Ég frétti það hjá Magga Guðjóns að Jóhannes Már væri svo mikil íþróttarfrík (ekki satt ?) svo þá er tilvalið að hann mæti með mér og fleirum í spinning í Borgarnesi á laugardagsmorguninn!! Frábær hugmynd hjá mér! Það er bannað að stríða mér því ég er HJARTASJÚKLINGUR !! Pælið í því Magga Scheving íþróttarálfurinn!! Jæja dúllurnar mínar verið nú dugleg að skrifa í gestabókina og segja einhvað frá ykkur því þið vitið það að ég er svo óstjórnlega forv.... Bestu kveðjur, ég verð víst að hætta því ég á að hafa það rólegt og það á nú ekki beint vel við mig orkuboltann !!

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-25

Vúld jú bílív itt

Hvað haldiði að hafi gerst alveg óvænt. 304!!!!!

Óskráður (johannes) skrifaði: 2007-02-23

SVS 1982

Endalus sæla.

Hvar ætlar þetta eiginlega að enda!!!!!! Bara 307 dagar til jóla. JMJ

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-20

Komiði sæloblessuð!!!

Og takk fyrir síðast. Mér finnst þetta 25 ára afmæli nú bera nokkuð brátt að, átti ekki von á því svona strax á eftir 20 ára afmælinu. Veit ekki hvort ég á heimangengt þessa helgi... en mikið schelving væri það gaman. Ég verð að taka nokkurra daga frest til að svara, kem þá bara með tjald ef allt verður fullbókað. Kærar kveðjur. Gísli Sig. á herb. 203... herbergisfélagi Fúsa á herb. 205!

Óskráður (Gísli Sigurðsson) skrifaði: 2007-02-19

Ekki veit ég hvernig þessi bekkur væri án Möggu Sceving

Auðvitað var Magga Ske fyrst í Gestabókina og þakka þér fyrir að hringja í mig á laugardaginn og afsakaðu að ég skildi ekki hafa þekkt í símanum, en ég skal bæta þetta allt upp á Hamri. Allir sem ég hef heyrt i eru mjög jákvæðir, hvetjum nú alla til að skrá sig sem fyrst, hlakka óendanlega mikið til að hitta ykkur Magnús G.

Óskráður (Magnús G.) skrifaði: 2007-02-19

SVS 1982

Þvílík sæla

Ekki minnkar gleðin í dag. Bara 308 dagar til jóla. Jóhannes Már.

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-19

Snæfellingarnir alltaf fyrstir

það er alltaf sama sagan. Við snæfellingarnir erum alltaf fyrstir og fremstir til að bregðast við þegar kemur að skemmtilegheitum. Verð með tilboð á háralit og kollum, vinsamlegast panntið hér á síðunni fyrir 15 april kveðja Fúsi herb 205

Óskráður (Sigfús Almarsson) skrifaði: 2007-02-17

SVS 1982

Þetta er bara gargandi snilld !!!

Elsku dúllurnar mínar á herbergi 207 !! Þetta var frábært framtak hjá ykkur!! Ég og Lisbeth (Lis) eru búnar að taka frá herbergi fyrir okkur á Hótel Hamri í tvær nætur. Ekkert annað en að taka helgina með stæl. Vonandi komast ALLIR. Bestu kveðjur Magga Scheving. p.s. ekki er ég fyrst að skifa í gestabókina ?

SVS 1982 skrifaði: 2007-02-17


Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SVS 1982

Ég verð að viðurkenna að fátt gladdi mig meira en að sjá að það eru einungis 309 dagar til jóla.

JMJ

SVS 1982, 18.2.2007 kl. 20:53

Bæta við athugasemd

Hver er summan af einum og tuttugu?
Nota HTML-ham

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband