Það er hreint og beint ótrúlegt að skoða þessar gömlu myndir. Annað hvort dettur hakan niður á manni (fer reyndar ekki lengur mjög langt) eða maður skellihlær. Ég á engar myndir frá þessum árum einfaldlega vegna þess að ég las (16 ára gamall ) grein um það að ljósmyndir segðu aldrei satt og það væri ekkert að marka þær. Ég sannfærðist svo rosalega að ég tók ekki myndir í 5 - 6 ár. Ótrúleg heimska og mislukkaðir stælar. Ég á fyrir vikið t.d ekki eina einustu mynd frá Hawaii.
Ég man þetta af...æli nokkuð vel um leið og ég sá myndina af trénu. Í huga mér var þetta strönd með einu tré og þar vorum við. Ég held að ég hafi ekki verið fyrstur til að æla...en ég ældi. Um nóttina ældi ég algjörlega út klósettið í íbúðinni. Arnar og Ingó flýðu út strax um morguninn og ég þurfti að borga þernunni ansi marga dollara fyrir að þrífa æluna upp.
En skólastjórinn mætir
Hlakka til að sjá ykkur
Þröstur þú kemur núna er það ekki ?
Eyjólfur
Flokkur: Bloggar | 5.3.2007 | 20:27 (breytt kl. 22:19) | Facebook
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
182 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.