Jísus kræst, ertu að klikkast kelling......

  • Það er víst best að hafa þetta þetta í svona punktum eins svo maður verði ekki skammaður fyrir stílleysi  í uppsetningum
  • Ég þakka nú  guði fyrir  að vera  á  góðri  næringu þegar maður þarf að fylgja þér eftir
  • Annars er ég rosalega ánægður með hvernig þú tekur á liðinu, svo jákvæð og  hvetjandi, ég er viss um að allir blogga í dag,  enda enginn maður með konum  nema hann bloggi hér ..
  • Marga laxa, það man ég ekki  7 eða 8 á  stöngina  og ég 3 held ég af því, við veiddum bara á flugu ....................
  • Þetta er annars bráðskemmtilegur strákur sem þú átt og ótrúlega líkur mömmu sinni,  ég  hef aldrei séð pabba hans þannig að ég veit ekki hvort hann er líkur honum ....
  • Þú  veist það Magga mín að þú getur alltaf fengið Herbalife pillur og duft hjá mér bara þegar þú vilt og réttir upp litla fingur, þá mæti ég með skammt fyrir þig .. þú verður bara meiri dúlla sjáðu ....
  • En  ertu  ekki örugglega að hressast ... ég  veit reyndar ekki við hverju má  búast frá þér ef þú bætir miklu við þig......
  • Magga  haltu áfram á sömu braut,  djöflastu á liðinu og  hættum ekki fyrr en  allir eru  búnir   að  blogga ..  svo krínum við bloggmeistara bekkjarins, svona eins og Date drottningin og kóngurinn voru krínd...á Bifröst..
  • Djöfull hlakkar mig til að  hitta allt þetta lið,  kanntu ekki einhver ráð með að ná  á staðinn, þeim sem ætla að skorast undan.  
  • Ég  var búinn að  spá í t.d. ef við fáum einhvern í að fingurbrjóta Árna á  Vöðlum þá getur hann ekki spilað á  ballinu hjá  Atla og þá verður að fresta ballinu og þeir eru báður lausir  um helgina sem við verðum á Hamri.. Hvernig líst þér á  þetta ??
  • Ég  var líka að spá   í  hvort við ættum ekki að láta ræna Halla  Krullu á  Permanentmótinu á Akureyri og flytja´ann í  böndum suður í Borgarfjörð,, þetta yrði alla vega besta auglýsingin  sem "Krullumótið gæti fengið" 
  • Jæja nokkuð gott í dag,  endilega ef þið eigið skemmtilegar  myndir,  skannið þær og setjið inná síðuna....
  • Bið að heilsa  Ása og minntu hann á að vera góður við þig, bið líka að heilsa syni þínum , hitti hann vonandi aftur í Miðfirðinum  eða  við aðra skemmtilega á...
  • Koma  svo   blogga meira,  þetta  er spurningin um að vinna heldur bara vera með
  • Magnús G.Cool

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SVS 1982

Hvað ! Áttir þú að veiða með einhverju öðru ? Magnús ekki varstu í húkkinu ? Ég held að þeir feðgar fari 2-3 í Miðfjarðará í sumar. Ég nenni þessu ekki og kann þetta ekki og hef ekki þessa þolinmæði við þetta !  Ég myndi synda á eftir löxunum og ná þeim þannig !! Þú veist það að það er bara ein bloggdrottning til og einn bloggkóngur !! Við skyldum aldrei vera svo fræg að missa þann titil ?

SVS 1982, 10.3.2007 kl. 14:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband