Kæru félagar,
ég sá hér tilkall til mín um að bæta í bloggsarpinn. Tilkallið var jú reyndar til miklu fleiri en þar sem ég var beðinn um það á þeirri forsendu að ég væri efstur á lista (sem hljómar alltaf vel og er nokkuð sem hefur fylgt mér nema þá helst þegar einhverjar Önnur eru að þvælast fyrir) þá er mér ljúft og skylt að stíga af hliðarlínunni, þjóta inn á völlinn, skora svo sem eitt sjálfsmark og láta tækla mig fyrst til hægri og síðan vinstri. Er þá fótboltalíkingum lokið í þessari færslu.
Mér finnst einkar skemmtilegt að sjá hvað fólk er fljótt að smella í sama gírinn og fyrir 25 árum síðan; eins og Dolla sagði hefur kímnigáfan síst af öllu skánað. Enda er góður brandari bara brandari sem verður fljótt óminnishegranum að bráð en lélegur brandari er sem uppvakinn nár sem sækir á mann í svefni jafnt sem vöku og það jafnvel mörgum árum eftir að hann var sagður; þar sem ég sporðrenndi Lion Bar eftir Lion Bar var mér boðið upp á meira Lion Bar, "Nari" og hef heitið það síðan.
Það er ekki annað hægt að segja en að þessi lífsreynsla sem varð til á þessari örstuttu dvöl úti í sveit hafi brennt mark sitt á sál okkar eins og værum við þátttakendur í Survivor eða sögupersónur í Lost. Þarna mótaðist samfélag með sínu eigin gildismati og það bergmálar enn (bergmálar enn(berg... ok- sjáið þið hvað ég á við?)).
Frá því við vorum hnípnir unglingar (á ýmsum aldri) reknir með harðri hendi af gæsagangsmarserandi sængurþjófum niður að einhverri tjörn í hrauninu mitt á milli Baulu og Borgarness til þess tíma að við stunduðum þá íþrótt að tæma meltingarveginn efri leiðina af einskærri gleði undir pálmatré í paradís, frá grýttri og rigningarsveittri sveitinni til suðrænna gullstranda, frá ámátlegum ölvunartilraunum með pilsner í gufu til kokkteila undir Diamond Head; það má sjá ákveðna slóð liggja úr hreinsunareldinum til himnaríkis.
Og það sem gerðist á leiðinni er það sem skiptir máli þó enginn hafi sömu sögu að segja; fyrsti brennivínssopi ævinnar fyrir utan hliðið í gulllitum Mitsubishi Colt; helskakkir pönkarar í bestu hljómsveitum landsins í heimsókn; síðustu upplýstu diskógólf landsins í Reykjavíkurborg; Hooked on Classics, helvítis Hooked on Classics; stanslausar harmonikkurúllirallirútuferðir í Hrútafjörð í einhverjum mér gleymdum en örugglega íþróttatengdum erindagjörðum; Norðurleiðarútunni breytt í Guantanamo með meintum fagurgala; fallbyssuleikir í Commodore Pet(minni: 16K); ég man greinilega eftir öllu nema því sem kennararnir reyndu að uppfræða mig í. Þó kunni ég einu sinni að þylja upp nöfn allra kaupfélaga réttsælis og rangsælis hringinn kringum landið; og er það miður að það skuli hafa gleymst. Það er aldrei að vita nema það gæti komið sér vel.
Þó spyr ég mig þegar ég lít á þessar myndir: "Hvaða börn eru þetta?"
Jafnvel þeir sem mér fannst vera öldungar og hoknir af elli þegar ég var sextán ára birtast á þessum myndum eins og þeir þurfi fullorðna í fylgd með sér á bíó; æskuljóminn blindar.
Best að ég hætti þessu þvaðri; það verður gaman að sjá ykkur. Síðasta uppákoma heppnaðist vel, sérstaklega yljaði það þá mér um hjartaræturnar að sjá myndir af mér löngu gleymdum páfagagaukum.
Flokkur: Bloggar | 11.3.2007 | 10:11 (breytt kl. 23:05) | Facebook
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
183 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir skemmtilegan pistil. En þú ert.... ?
Muna að kvitta.
ÓA (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 13:07
Getraun vikunnar. Vísbendingar í textanum. Tómur djúsbrúsi í verðlaun.
N (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 13:34
Frábært blogg´Nari í guðanna bænum haltu áfram á sömu braut...
MG (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 15:38
Þessi pistill var djúpur, ljúfur og skemmtilegur.
Eyjólfur
Eyjólfur Sturlaugsson, 11.3.2007 kl. 20:23
Ég hefði nú frekar viljað að hann væri grunnhygginn, andstyggilegur og almennt til leiðinda en það er svona; það er ekki á allt kosið.
AM.
AM (IP-tala skráð) 11.3.2007 kl. 21:20
Takk Arnar minn að svara kalli mínu !! Hlakka til að hitta þig dúllan mín !!
Kveðja Magga Scheving.
SVS 1982, 11.3.2007 kl. 22:37
Ég hefði frekar trúað því ef þú hefðir sagst ætla að Baula með ennisblaðinu. Það hefði sennilega hljómað svona eins og Bældir Tónar. Annars höfum við áður tekið þessa ennisblaðs umræu.
JMJ
Jóhannes Már (IP-tala skráð) 12.3.2007 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.