Kurteisi.

Þakka þér fyrir greinargóðar útskýringar Óli minn, ég er margs fróðari um verslunarhætti Kaupfélags Bannkokks og nágrennis og á það eflaust eftir að koma sér vel fyrir mig.

Ég vil síðan biðja þig JMJ margfaldlega afsökunar á öllum þeim dónaskap sem þú hefur orðið fyrir í gegn um árin af minni hálfu. Ég skil nú að þetta hefur verið þér erfitt Jóhannes, erfiðara en ég hafði áður gert mér grein fyrir. Vafalaust má telja það mikið afrek af þinni hálfu að geta enn látið þig hlakka til jólanna þrátt fyrir öll þessi áföll sem þú hefur orðið að þola vegna mín. Að þú skulir enn standa óbrotinn sínir best hvern mannkosta mann þú hefur að geyma. Ég ætla mér í framtíðinni að reyna að bæta mig, þó að ég þori varla að láta mig dreyma um að ná svo langt að geta tileinkað mér þá fágun sem felst í að geta kvittað undir ritaðan texta með Mbk. En á mörgum sviðum get ég lagast þó ég nái ekki slíkum árangri. Ég bið þig auðmjúklega að fyrirgefa mér.

Það er einnig hárrétt hjá þér að þingeyingar almennt mættu vera kurteisari og betur gerðir á allan hátt en þeir eru í raun. Við höfum okkur fátt til málsbóta. Þó vil ég nefna að aðstaða okkar hefur löngum verið erfið, og þá fyrst og fremst vegna þess hvað við búum í mikilli fjarlægð og langt og erfitt hefur verið fyrir okkur að sækja okkur æðri menntun í mannasiðum og kurteisi. Flestir hafa því neyðst til að sækja hana til Akureyrar. Og því er nú komið sem komið er.

Kveðja.

Gísli.

Ps. Ég er hættur að reyna að senda þér pillur Nafni Björn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SVS 1982

Og svo er það líka annað sem er svo gott við Þingeyinga.  Þeir eru ekki vitund hörundssárir.

MBK

JMJ

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 09:27

2 Smámynd: SVS 1982

Úps!! Hélstu að ég væri sár? Ég var nú bara að reyna að vera fyndinn, er bara ekki betri í því en þetta.

Kveðja, Gísli.

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 10:22

3 Smámynd: SVS 1982

Þetta stefnir í magnaða mannfræðilega ritdeilu um Þingeyinga þar Kaupfélag Bangkokks (KB?) kemur við sögu þótt ótrúlegt sé. Erum við ekki upprunnin hjá KÞ þar sem hálfguðirnir Benedikt frá Eyðilandinu og hvað sem hann nú hét réðu ríkjum? Svona er Samvinnusögukunnáttan farin að ryðga.  En þar sem írónía, djók og öfugmæli á stundum erfitt með að skila sér á berum textalendum bloggsins þykir móðins að nota  svona. Bara ekki óhóflega. Plís. Og Gísli, ekki gefast upp á að reyna að fá GB til að tjá sig.

Emoticon 2000 (AM)

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 11:43

4 Smámynd: SVS 1982

Þú varst bísna fyndinn af þingeyingi að vera.  Ég, eins og sannur Eyfirðingur, fann bara ekkert fyndnara sjálfur til að svara þér.  Ég hefði til dæmis aldrei getað grafið í Samvinnusöguna eins og AM til að skreyta svarið.  Eina sem ég man úr Samvinnusögu er hið ódauðlega svar "ekki vildi ég vera þessi eini". 

JMJ. 

P.s. Ég hef algjört antípat á þessum merkjasendingum.

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 12:09

5 Smámynd: SVS 1982

Já, merkjasendingarnar eru erfiðar. En hámóðins. Hver sagði "ekki vildi ég vera þessi eini?" Var nokkuð verið að tala um Eina Ögmann?

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 12:57

6 Smámynd: SVS 1982

Afsakið, ég gleymdi að merkja athugasemdina hérna á undan. Hún er frá mér, AM en ég hef ekki hugmynd um hver setti þennan ömurlega brandara í hana.

AM

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 12:59

7 Smámynd: SVS 1982

Það hefur kannski einhver sent hann á þig sem fatwa. Hvur andskotinn sem það nú er.

JMJ

SVS 1982, 15.3.2007 kl. 13:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband