Við munum öll eftir miklu félagslífi á Bifröst, skipulögðu og óskipulögðu, reglubundnu og stjórnlausu. Mér skilst að íþróttir hafi líka verið stundaðar.
En ég vil gera listalífið að umræðuefni mínu og þá sérstaklega ljóð-og sönglist.
Ég myndi fjalla um ballet hérna en ég hafði of lítið af honum segja enda útilokaður með nafni úr dansflokknum. Þetta hefur reyndar setið í sálinni síðan og ég lagt áherslu á listrænan dans þegar ég er á almannafæri en ekki uppskorið mikið lof fyrir af einhverri óskiljanlegri ástæðu. Þannig að ég vil leggja áherslu á það sem ég hafði sjálfur kynni af.
Í fyrsta lagi var það auðvitað Bældir tónar sem varð til þegar sálfræðidoktornum verðandi var vikið úr kórnum sökum lagleysis. Eins og sönn stjarna gat hann ekki þar við unað og lét sér ekki nægja að komast í kór; hann stofnaði kór og gerðist kórstjóri. Margir vaskir sveinar (voru einhverjar dömur?) skráðu sig í kórinn og fengu að því liggur við kynferðislega útrás í kraftmiklum söng. Ef áfallahjálp hefði verið til í þá daga hefði henni þegar verið beitt á fórnarlömb kórsins. Best þótti kórnum að syngja við þar aðstæður þar sem áheyrendur komust ekki út svo sem í Norðurleiðarrútunni. Hápunkti náði kórstarfið þegar skólastýran á Varmalandi ætlaði að kæra hann fyrir misbeitingu á þjóðsöngnum og öðrum fögrum ættjarðarlögum. En það heyrðist ekki í henni fyrir skruðningunum sem mynduðust þegar öll helstu tónskáld þjóðarinnar snarsnérust í gröfum sínum.
Annað merkt framtak sem JMJ minnti mig á var ljóðabók sem fjögur ungskáld gáfu út undir dulnefnum (sem kemur kannski ekki mjög á óvart þegar ljóðin eru skoðuð). Þau afhentu öðru úngskáldi, Sigmundi Erni Rúnarssyni, ljóðabókina við hátíðlega athöfn og ferill hans eftir það ber viss einkenni þess að hann sé ekki búinn að jafna sig.
Ljóðabókin er ónefnd. Kannski hún hafi heitið Ónefnd. Skáldin kjósa að kalla sig ÓP, TVC, St. Joe og NN. Þau eru öll gríðarlega dramatísk og ljóðin einkennast af mikilli innri baráttu milli sjálfsupphafningar og sannfæringar um að kerfið muni gleypa þau. Heimurinn er vondur en skáldið æðislegt. Einnig er kalda stríðið að herja á hugarheima skáldanna. Hormónaflæði gæti líka hafa haft áhrif.
Hér eru nokkur dæmi.
Ljóðið Ljóð eftir ÓP. Það er svona:
"Mér finnst ég vera Superman.
Samt ætla ég ekki að bjarga heiminum."
Annað gott er Strengir eftir St. Joe.
"Komdu vina!
Sláðu á strengi mína.
Nei,
ekki misskilja mig.
Ekki segja falleg orð.
Ekki reyna að gleðja mig.
Nuddaðu læri mín.
Ég er með strengi."
Sameiginlegt ljóð TVC og St. Joe heitir Hnignun:
"Lampi á útopnu
reynir að gleypa epli.
Tveir drengir
misþyrma lampanum
og éta eplið.
Lampinn hverfur
í rautt hvolf.
Við sjáum hann ekki framar fyrir útbreiðslu kommúnismans.
Brátt verður Marx að ryki."
Ragnarrök eftir NN:
Fjólublátt ljós klýfur himingeiminn.
(Brimkló notar Bose)
Sundursker heiminn.
AM
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
183 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Arnar þú ert náttúrulega snillingur, eins og alltaf var augljóst. Mikið hlakka ég til að lesa sjálfsæfisöguna þína þegar hún kemur út. Fer ekki að styttast í fyrsta bindi? Gísli.
SVS 1982, 13.4.2007 kl. 17:11
Arnar, algjör snilld að rifja upp þessa snilldarlegu ljóðabók. Reyndar hét og heitir hún: "Það er eins og allt sé ekkert... og þó". Og ég held að ég eigi eintak af henni niðri í geymslu. Mig minnir reyndar að þessi sömu ungskáld hafi gert eftirminnilegan útvarpsþátt sem enginn tók eftir nema þeir og Sveinn Rögnvalds í lestímum þegar þátturinn var í vinnslu.
Eitt af skáldunum.
SVS 1982, 16.4.2007 kl. 23:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.