Framtíðaráform nokkurra nemenda útskrifaðra 1982 - skyldi þau hafa ræst ???

Arnar:  Fara til Brasilíu og græða á bjálfunum þar.

Baldvin Albert: Að græða, mennta sig, ferðast og lifa lífinu.

Egill Össurar:  Ná mér í duglega kerlingu sem getur unnið fyrir mér.

Elísabet: Fá mér nýjar buxur og stúdentspróf.

Eyjólfur: Komast í Garðyrkjuskólann og verða milið blómabarn.

Gísli Sig: Verða ríkur og fá sér nýjan Benz.

Guðbjartur: Að halda lífi.

Guðlaugur: Að eignast góða konu og góða hesta.

Guðmundur Atli: Að verða íslandsmeistari í þvi sem ég verð ekki heimsmeistari í.

 G. Vald.: Að koma Sparisjóði Skagastrandar í þátíð.

Guðrún Árna: Klára stúdentinn og fara í endurskoðun í háskólanum.

Guðarún Jóns: Framtíðaráform óákveðin.

Hannes: Fara í farmhaldið og gera gagn í lífinu.

Haraldur: Drekka sig í hel um fertugt.

Ingólfur: Safna miklu og góðu skeggi.

Jóhannes Már:  Framtíðin verður ágæt, þakka þér fyrir (verða ríkur).

Jónas: Að taka við Lenda í Bandinu og þá að sjálfsögðu að greiða út arð.

Kolbrún: Fara í framhaldið og hefja "búskap" með Guðrúnu Árna.

Kristrún: Mennta sig og ferðast.

Lísbeth: Búa í ferðatösku fyrst um sinn.

Magnea: Læra meira og hvíla sig í faðmi fjölskyldunnar.

Magnús: Mennta sig aðeins meira til að fá góða vinnu.

Margrét Geirs: Að verða eitthvað innan Sjálfstæðisflokksins.

Margrét Sch: Leigja íbúð í Reykjavík með Ása sínum og leggja stund á framhaldsnám.

Ólafur: Gera KHB stórt.

Reynir: Kaupa nýja Canon F1 myndavél.

Signý: Skoða restina af heiminum.

Sólveig: Að skoða þennan "heim" sem allir eru að tala um.

Svava Björg: Búskapur, búskapur, búskapur.

Viðar: Að vinna einkaframtakinu ómetanlegt gagn um ókomna framtíð.

Þórður: Klára skólann, fara til Hawaii í vor og láta hitt ráðast.

Þröstur: Klára framhaldið og verða mikill maður.

Úr Ecce Homo

ÓA.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmm... ég hef drukkið kaffi frá Brasilíu. Telst það með?

AM

Arnar Matthíasson (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 19:33

2 identicon

Eru þeir þá ekki að græða á þér.

JMJ

Johannes (IP-tala skráð) 13.4.2007 kl. 21:51

3 identicon

Jú, þetta snarsnérist greinilega allt í höndunum á mér. Enda gott á mig eftir að hafa farið svona ófögrum orðum um þessa yndislegu þjóð. Annars munaði minnstu að við Ingólfur hefðum flutt til Brasilíu. Við vorum bara of stupid til að finna ræðismanninn.

AM

Arnar (IP-tala skráð) 14.4.2007 kl. 19:27

4 identicon

Ég veit svo sem ekki hversu mikið gagn ég hef gert einkaframtakinu, en ég hef þó reynt allt hvað ég get, en mest hjálpað þá öðrum en sjálfum mér :(
Viðar

Viðar (IP-tala skráð) 15.4.2007 kl. 13:07

5 Smámynd: SVS 1982

Klára framhaldið? Löngu búinn með það en samt enn í skóla, verða mikill maður - helst of þungur eins og ýmsir aðrir

ÞÓ

SVS 1982, 16.4.2007 kl. 12:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband