Heyriði mig nú elskurnar....... Það sjá allir ógildi þeirra raka sem sumir úr okkar ágæta hópi hafa haft í frammi að undanförnu vegna væntanlegrar fjærveru sinnar. Nú síðast voru þær meira að segja rakalaus. Hvort einhver spilar BOTSIU eða eitthvað annað.. þá getur sá hinn sami fundið betri tíma til þess en akkurat tímann sem við ætlum að hittast. Þá heyrði ég af einhverjum í dag sem forfallast vegna Gospel tónleika af öllu ég mundi frekar taka mark á hælsæri.... Jónast.... 25 ára brúðkaupsafmæli - Það er alveg ljóst hvar áherslurnar liggja hjá þér... við munum þetta... Það er ekki svo að skilja að þetta hafi verið ákveðið í gær....
Eins og maðurinn sem komst loksins til Jótlands sagði; .. ég fer ekki héðan fyrr en ég sé helvítis kubbana"; þá verður ekkert gaman nema maður sjái stelpurnar. Hvaða afsökun hefur Magga Geirs? Ég trúi ekki fyrr en ég tek á að Sveif og Sigurbjörg og Guðrún ætli að klikka. Dolla komdu þér úr þessari safnaðarnefnd - hefurðu hugleitt aðra trú. Maður kemst jú með helv. Kóraninn hvert sem er....
Hvað er með Dodda. Hefur einhver heyrt í honum. Jón Pétur - mér finnst þú kunna nóg....
Bjartur hvar ert þú þá þegar við þurfum mest á þér að halda.
Ég trúi því bara ekki að fólk taki þessu samkvæmi okkar svo léttúðlega að innan við tveir þriðju mæti.
Þetta hafði ég að segja í dag...
kv
jv
Flokkur: Bloggar | 16.4.2007 | 18:54 (breytt kl. 18:54) | Facebook
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
183 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ég tek undir með þér Jóhannes að auðvitað eigum við að stefna að 65% mætingu í það minnsta og Magga Scheving in að vinna í málinu líka, en eitt er víst að það verður heljarinnar fjör á Hamri og þeir sem ekki koma þar munu iðrast þess um aldur og ævi...... Ég er hinsvegar löngu hættur að spekulera í því fólki sem ekki ætlar að mæta, það skiptir engu máli í rejúnioniu, bara þeir sem koma og þess vegna skulum við endilega þessi sem ætlum að mæta fara að hugsa um hvað við ætlum að hafa skemmtilegt á dagskránni og hvernig við ætlum að skemmta hvort öðru.
Þetta verður geðveikt stuð og ég get varla beðið eftir þessari helgi.....
MGuðjóns
SVS 1982, 16.4.2007 kl. 20:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.