Hér er myndin Maggi. Var að vandræðast smá. Ætlaði bara að láta vita í sambandi við framtíðaráformin að ég er ekki orðinn fertugur enn svo ég hef enn tækifæri til að ná mínu markmiði. Myndin - merkilegt nokk - fór bara svona inn af sjálfsdáðum og vildi þar með segja: Ef þú ert ekki orðinn fertugur Halli, af hverju var þessi mynd þá tekin í fertugsafmæli yngsta bróður þíns?
Og Magga, konan mín, sem er reyndar sambýliskona því ég hef ekki haft dug í mér til að kvænast henni enn (hún er þarna í bakgrunni, aldrei langt undan) - hún ræður ekki yfir mér. Ég ákveð sjálfur hvort ég blogga eða ekki. Og þetta blogg er sko alveg til komið af mínum eigin hvötum en ekki vegna þess að þú eða Jóhanna eða Maggi eða einhver annar hafi skorað á mig að blogga. ...eða þannig...
Annars fékk ég þá villtu hugmynd að fara inn í leikhús hér á Agureyris, leigja mér eitthvert mjög eðlilegt gervi og búning, setjast upp í bíl síðdegis á laugardeginum, aka í Borgarfjörðinn og laumast til að vera gestur á Hótel Hamri á laugardagskvöldið - sleppa bara krullupartíinu og bruna svo aftur til Akureyrar fyrir fyrsta leik á sunnudagsmorgun kl. 8:30. Þið skuluð því líta vel í kringum ykkur og skoða aðra gesti hótelsins vel, jafnvel toga í skeggið á einhverjum til að athuga hvort það er ekta.
Nýtt framtíðaráform, ef mér skyldi ekki takast að drekka mig í hel fyrir fertugt: Að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í permanenti. ...og talandi um permanent og svoleiðis, hafiði velt því fyrir ykkur hver sá um að klippa mig á Bifrastarárunum? Þessar tvær myndir sem skarta mér sýna svo ekki verður um villst að þar hef ég ekki lent í skærum fagmanns... eða var þetta tískan þá?
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
183 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Rosalega er ég ánægð með þig Haraldur að láta undan þrýstingi hjá okkur eða mér ! Mér lýst stórvel á það að þú komir í búning til okkar, PLÍS gerðu það komdu, þú ert svo hrikalega skemmtilegur eins og bróðir þinn. (EIN FÖLSK NÚNA). Þetta verður dúndurstuð !! Þú kemur með sambýliskonuna þína með þér og sleppir þessu helv. krullumóti (samþykkt ?). Bestu kveðjur. M.Scheving.
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 18:25
Viðurkenndu það bara skræfan þín að Þú ert drulluhræddur við Möggu Scheving og örugglega sambýliskonuna þína líka og sýndu svo manndóm í þér og stattu við að mæta á laugardagskvöldið. Þú mátt bara vera í hvaða búningi sem þú villt, þú mátt vera playboy kanína mín vegna ef þú sýnir þann manndóm að mæta eins og fullorðinn maður.. annars þakka þér fyrir skemmtilegt blogg og haltu endilega áfram, þetta verður bara geðveikt stuð á okkur á Hamri.... Sjáumst
Magnús G.
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 22:16
Svei mér þá, ég held að við séum bara þrjú hérna. Þegar ég las bloggið mitt aftur fannst mér þessi byrjun á setningu hljóma dálítið undarlega:
Magga, konan mín...
Hélt að Magga Scheving væri mamma mín, að minnsta kosti er ég alltaf litla barn í hennar augum og þannig tala bara mömmur um krílin sín.
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 22:48
Það er bara eitt sem mig langar til að vita um permanent frama þinn.
Ertu á sópnum?
Mbk.
JMJ
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 23:13
Mér sýnist líka á myndinni að þetta séu síðustu örlagaríku andartökin eftir að hafa innibyrt of mikið magn af Campari. Þurfti ekki að smúla myndavélina.
Mbk
JMJ
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 23:19
Ég er aðal, læt aðra aðallega um að vera á sópnum.
Þroskaðist frá Campari, held að bjórinn hafi tekið yfir. Sýnist það þegar ég lít niður. Minnir að ég hafi tekið þessa mynd sjálfur... eða kannski ekki...
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 23:30
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 23:40
Ég er þegar búinn að skamma hann einu sinni. Þú veist hvernig þetta er með gamla hundinn.
mbk
jmj
SVS 1982, 20.4.2007 kl. 23:48
Ég kann að sitja...
HáI
SVS 1982, 21.4.2007 kl. 06:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.