Frumsýning á morgun !!

  • Geðveikt gaman hjá mér núna !! Sjúbbídú !!
  • Ég var að fá í hendurnar svo yndislega góða mynd af Óla Ara og Jóhannes Má síðan 1983 !! Hún verður frumsýnd á morgun vonandi tekst mér það !! Ef ekki, þá læt ég barasta Óla hjálpa mér. Hann var nú vanur að leysa öllu tölvuverkefni fyrir mig í skólanum þessi elska !
  • Þetta verður bara gaman !!  OOOOgggg ég hlakka svo til !!
  • Haraldur litla barn, þú veist það að þú verður alltaf litla barnið mitt !! Krúttípúttið mitt !!
  • Kveðja M.Scheving.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SVS 1982

Magga mín.  Bara svo þú vitir það þá er ég ekki ennþá búinn að spila út öllum mínum trompum.

Annars er ég ekki viðkvæmur fyrir myndbirtingum.

JMJ

SVS 1982, 20.4.2007 kl. 23:49

2 Smámynd: SVS 1982

Magga mín! (Af hverju segja allir Magga mín!)? Fékkst þú gefins orðabók með öllum orðmyndum sjúbbídú og krúttípútt? Er þetta kannski færeyska eins og Scheving? Hvar er annars þessi frábæra mynd af JMJ sem þú lofaðir?

HáI

SVS 1982, 21.4.2007 kl. 15:13

3 Smámynd: SVS 1982

Magga mín! (Af hverju segja allir Magga mín!)? Fékkst þú gefins orðabók með öllum orðmyndum sjúbbídú og krúttípútt? Er þetta kannski færeyska eins og Scheving? Hvar er annars þessi frábæra mynd af JMJ sem þú lofaðir?

HáI

SVS 1982, 21.4.2007 kl. 15:51

4 Smámynd: SVS 1982

Magga mín! (Af hverju segja allir Magga mín!)? Fékkst þú gefins orðabók með öllum orðmyndum sjúbbídú og krúttípútt? Er þetta kannski færeyska eins og Scheving? Hvar er annars þessi frábæra mynd af JMJ sem þú lofaðir?

HáI

SVS 1982, 21.4.2007 kl. 16:03

5 Smámynd: SVS 1982

Elsku dúlludósin mín ! Þú veist það að ég er færey... en Scheving er danskt ættarnafn. Djúbbídú ! Ég elska að búa til orðatiltæki,  ég og mine far eru fræg í ættinni að búa þau til. Því miður er ég búin að vera á blakmóti í allan dag og þess vegna er ég ekki búin að setja myndina inn. Hún fer að koma, bíddu rólegur. Ég þurfti nú að bíða í TVO MÁNUÐI EFTIR AÐ ÞÚ BLOGGAÐIR ! Kveðja M.Scheving

SVS 1982, 21.4.2007 kl. 17:47

6 Smámynd: SVS 1982

Magga, hér er eitt orðatiltæki fyrir þig: Betra er að vera á móti blaki en á blakmóti!

HáI

SVS 1982, 21.4.2007 kl. 20:45

7 Smámynd: SVS 1982

Hvað meinar þú Haraldur með þessu orðatiltæki ?  OOOggg ég fattaði þetta núna !! Æi ég var búin að gleyma því hvernig þið voruð í skólanum !! Alltaf að snú útur mútur lútur !! Dúllídúll. M.Scheving.

SVS 1982, 21.4.2007 kl. 23:35

8 Smámynd: SVS 1982

Magga mín! (þetta er orðið að vana)... er mikið um að makar blóti á blakmóti?

HáI

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 15:28

9 Smámynd: SVS 1982

Æiii ! Þetta er svo sætt að segja Magga mín !! Nei, það er sko bannað að blóta í návist barna, þetta var krakkablakmót. Ennn en ég blóta bara á þorrablóti !! Djúbbídú !! M.Scheving.

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 15:46

10 Smámynd: SVS 1982

Held bara að við séum hérna tvö ein...

HáI

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 15:56

11 Smámynd: SVS 1982

Sammála ! Skrítið það eru samt 43 búnir að koma á síðuna í dag !! Ég held að þau haldi það að við séum skemmtikraftarnir á síðunni !! Sjúbbídú !! M.Sch.

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 16:38

12 Smámynd: SVS 1982

Það  kom  að því að  Háll  vaknaði búinn að vera á  blogginu  í marga..  daga... sýndu okkur nú hvað  í þér býr  og  mættu á laugardaginn..

MG.

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 18:32

13 Smámynd: SVS 1982

Ég mæti á laugardaginn... sko ég mæti bíl á leiðinni að heiman inn í Skautahöllina... ég mæti mikilli andstöðu þegar ég reyni að koma mínum einstaka húmor á framfæri í krullupartíinu á laugardagskvöld, ég mæti það mikils ef ég næði að vinna einhverja leiki á þessu móti, sem sagt: Ég mæti!

HáI

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 21:37

14 Smámynd: SVS 1982

Góður Haraldur !! M.Sch.

SVS 1982, 22.4.2007 kl. 23:44

15 identicon

Já Halli hefur alltaf verið góður, en að hann væri svona framsýnn hefur komið mér á óvart, var hann ekki kallaður hérna um árið Curly þegar hann var að taka þátt í einhverjum körfuboltaleiknum???
mbk   Viðar

Viðar (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 18:16

16 Smámynd: SVS 1982

Nei, nei, detta  af mér allar dauðar lýs og ein lifandi ! Er ekki Viðar vaknaður ! Það var líka kominn tími á þig sko !! Núna hafa farið 60 inn á síðuna. Og bara ég og þú Viðar minn sem blogguðu !  Humm humm þetta er orðið svolítið skrítið ! Bara fimm dagar í hittinginn !! Sjúbbídú !! M.Sch. 

SVS 1982, 23.4.2007 kl. 18:32

17 Smámynd: SVS 1982

Sko, hérna, tók ég einhvern tímann þátt í körfuboltaleik á Bifröst? Curly er annars ágætis nafn svona þannig laga. Krulli Steinsson er líka ágætt og stundum nota ég það á netinu.

 En Magga mín (!), ég held að þessir 60 notendur séum aðallega ég og þú að kíkja aftur og aftur og sjá hvort hitt hefur ekki sett inn nýtt komment. Við hljótum að vera rosalega fersk eftir að ýta svona oft á "refresh" takkann!

Ef geislarnir eru skakkir, hlýtur sólin að hafa gengið til... Viðar.

SVS 1982, 24.4.2007 kl. 01:42

18 Smámynd: SVS 1982

Haraldur minn, mundu nú að setja stafina þína við !! Nei ég er ósammála því að þetta séu bara ég og þú að fara svona oft inn á síðuna !! KOMM ON !! Við erum alltaf svo fersk, það gerir sveitaloftið !! Það reddar þér Haraldur minn að þú ólst upp í sveitinni þess vegna ertu svona ferskur fyrir norðan heiða !! M.Sch.

SVS 1982, 24.4.2007 kl. 08:07

19 Smámynd: SVS 1982

Gleymdi að setja stafina mína fyrir neðan þarna fyrir ofan... en ég bara harðneita að setja göngustafinn minn undir þetta, get ekki án hans verið.

HáI

SVS 1982, 24.4.2007 kl. 21:34

20 Smámynd: SVS 1982

Samt er þetta svolítið eins og Jónas frá Hriflu sé að tala við sjálfan sig ef maður setur ekki stafina sína undir athugasemdirnar. Dálítið gaman að því.

SVS 1982, 24.4.2007 kl. 21:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband