- Þetta var frábær helgi krakkar ! (erum við ekki það alltaf ?) Ég svaf nú voðalega lítið síðustu nótt ! Vegna þess að það komu alltaf einhverjir að glugganum til okkar Lis ! Ég held að þeir hafi verið að ná í vínanda sem var fyrir utan hjá okkur ! Hver skyldi það hafa verið ? Kannski Óli Ara, Gísli Sig., Fúsi, Jói Vald., Arnar, Viðar G.Vald., ??? Svo frétti ég af einum Borat í heita pottinum, sem var í sundbol ! Hver var það ?
- Rosalega var tekið vel á móti okkur upp á Bifröst, Þórir Páll ef þú lest þetta, þá færðu þúsund kossa frá okkur !!
- Makarnir sem mættu með fá bestu kveðjur og þakkir fyrir að þola okkur !! Sjúbbídú !! Gangi þér vel í prófinu á morgun Helga !! Sigrún ég þurfti ekkert að rota Óla þinn Ara !! Hann er orðinn svo stilltur pilturinn, þú ert búin að ala hann svo vel upp, nema þú mátt nú lemja hann aðeins fyrir mig hann sagði að ég væri FEITABOLLA !!
- Maggi minn Guðjóns. þú mátt setja inn fleiri myndir !! Ein frek núna !!
- Ég gleymdi að kveðja nokkra, þið fáið sko stórt knús frá mér í pósti !! Sumir voru enn sofandi þegar ég fór vestur (Óli Ara og Viðar), þeir hafa kannski verið í morgungöngu, ég nefnilega veit það að þeir eru báðir svo mikið fyrir líkamsrækt !! Lúbbídú !!
- Jæja gullmolarnir mínir takk enn og aftur fyrir helgina, þið eruð yndisleg og allir eins og þeir voru fyrir heilum 25 árum !! (ekki satt ?)
- Kossar og knús dúllurarnar mínar !! M.Sch.
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
184 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ekki örvænta Magga mín, ég talaði við Ása í dag þannig að ég veit að hann er til, þú færð fullt af myndum þær koma í skömmtum ekki allar í einu sjáðu..... chilla´ðu þig bara niður þetta kemur og takk fyrir þessa fallegu kveðju.....
MG.
Magnús G.. (IP-tala skráð) 29.4.2007 kl. 22:17
Elsku Magga ég var alveg miður mín að þú skildir ná að fara án þess að kveðja mig en takk fyrir frábær kynni. Kveðja Lína (G. Vald)
Lína (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 00:32
Takk sömuleiðis, Lína mín ! Ég er svo ánægð hvað hann G.Vald. náði í hressa stúlkukind !! OOOOggg ég tala nú ekki um þennan smitandi hlátur sem þú hefur !! Þú ert frábær Lína mín og við verðum í bandi !! Mbk(Magga bloggar krúttlegast)!! M.Sch.
SVS 1982, 30.4.2007 kl. 08:17
Ég vil líka nota tækifærið og þakka kærlega fyrir mig. Við tékkuðum út á hádegi, þá var ég búin að láta Óla ropa og svona, þannig að okkur var ekkert að vanbúnaði... sem betur fer vorum við ekki í kveðjunefndinni, því allir aðrir Bifrestingar voru farnir af svæðinu. Kveðja, Sigrún (Óla Ara).
Sigrún (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 12:05
Ææiii !! hvað þetta var sætt Sigrún mín ! Ég vissi það hvað hann Óli minn Ara er vel giftur !! Svo að ég er alsæl með þig Sigrún mín !! Sko stórt knús frá mér !! M.Sch.
SVS 1982, 30.4.2007 kl. 12:40
Já vildi bara þakka fyrir mig, frábært að hitta alla eftir mislangan tíma reyndar. En ætli maður klikki á þessu aftur þe að mæta
kv Viðar (Viðar)
ps. Magga ég kom bara einu sinni þarna fyrir utan gluggann hjá ykkur
Viðar (IP-tala skráð) 30.4.2007 kl. 13:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.