Kæru vinir, kærar þakkir.

Til hamingju með daginn öllsömul.

Og kærar þakkir fyrir síðast. Til viðbótar við aðra heilsubresti þá er ég nú kominn með króníska vöðvabólgu í andlitið, af því að brosa. Það hefur nefnilega ekki farið af mér brosið síðan á sunnudag. Og samstarfsfólk mitt hefur spurt hvort ekki sé allt í lagi, og mér vefst tunga um  tönn. Jú víst er allt í lagi þannig séð. En hvernig getur maður útskýrt fyrir ókunnugum að maður sé að brosa af því að fyrir töttögöogfemm árum hafi ákveðinn skólafélagi manns mátað alveg nýja gerð af andlitsgrímum... eða af því að maður var að hugsa um júgursmyrsl... eða af því að manni datt allt í einu í hug þvagleggur. Þetta skilur náttúrulega enginn venjulegur maður. En það gerir ekkert, ég brosi bara áfram.

Þetta var algjörlega frábær helgi. Ég held ég hafi ekki skemmt mér svona vel í fimm ár! Og hvað var svona skemmtilegt??? Jú það voruð þið. Þið sem hjálpuðuð mér að rifja upp allar gömlu GÓÐU minningarnar, og þið sem gáfuð mér margar nýjar sem ég geymi til elliáranna við hliðina á þeim gömlu. Góður dagur er mikils virði, en minningin um hann er ómetanleg. Dagurinn líður hratt, en minningin lifir með manni og yljar manni æfina á enda.

207 group! Þið eigið skildar alveg sérstakar þakkir, fyrir að gefa okkur hinum tækifæri á að lífga gamlar og eignast nýjar minningar. Það er vinna að koma svona samkomu á koppinn og þið sáuð um hana. Hafið heila þökk fyrir. Vegna þessa ómaks ykkar erum við öll ríkari.

Kær kveðja til ykkar allra.

Gísli.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: SVS 1982

Tek  undir með þér  Gísli með skemmtunina,  við  félagarnir í  207 group fengum nú  allt út úr  þessu, það sama og þig og örlítið meira til því við fengum tækifæri til að undirbúa  þetta aðeins og það var mjög gefandi.   Þessar minningar frá Bifrastarárunum og svo  regluleg  endurnýjun með svona helgum eru auðvitað  mikil verðmæti og  ekki er hægt  að meta þessa hluti til fjár,  ég  t.d.  gerði mér ekki  grein fyrir því að Kæfisvefn  væri svona fyndinn, fyrr en þú lístir honum á Laugardagskvöldinu..  Þessi samkoma var ótrúlega  skemmtileg  og  enda frábær  hópur sem var samankominn á  Hótel Hamri  um helgina..  Þakka þér sjálfum fyrir þinn frábæra  þátt í að gera þetta kvöld ógleymanlegt...

MGuðjóns 

SVS 1982, 1.5.2007 kl. 22:55

2 Smámynd: SVS 1982

Takk fyrir Gísli minn, þetta var voðalega gaman hjá okkur. Ég er enn að drepast í kjálkanum eftir allan hláturinn ! Gangi þér vel að byggja, hafðu það sem allra best. Sjúbbídú !! Mbk.M.Sch. 

SVS 1982, 1.5.2007 kl. 23:11

3 Smámynd: SVS 1982

OOOhhhhh Gísli. Florence Nightingale myndi ganga aftur ef hún vissi hvað ég skemmti mér vel yfir heilsufarsvanda þínum. Mundu loforðið.......................... ég vil vita af því Þegar þú sefur hjá mér. Til hamingju með daginn!!!!!!!!!!!!

Kveðja Beta

SVS 1982, 2.5.2007 kl. 00:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband