Þessi síða er alveg steindauð !! Sjúbbídú, ég ætla að reyna að bæta úr því !!

  • Jæja, elsku dúllurnar mínar ! Af mér er allt gott að frétta og Ása mínum líka. Ég ætla bara að láta ykkur vita að ég og Ási minn þessi elska erum búin að vera gift í heil 20 ár í dag sko 4.júlí (ég er svo mikil USA stelpa) !! Spáið í það, hann er búinn að þola mig öll þessi ár og gott betur en það !! Greyið Ási minn !!
  • Ég var að tala við Óla Ara í dag, og hann var að láta mig vita af því að hann og fleiri skemmtilegir krakkar ætla koma vestur á næstu helgi !! Svo ég má fara að baka núna !! Svo að þeir sjái það hvað ég er myndarleg HÚSMÓÐIR !!   
  • Krakkar er ekki allt í lagi hjá okkur að BLOGGA SMÁ !! T.d. einu sinni í mánuði ... Ha.. sammála....
  • Hvar er hún Dolla dúlludós, ætli hún sé enn að syngja og funda í sóknarnefndinni... Humm...spurning...
  • Ætli Jói Val. sé á landinu... eða hann Maggi Guðjóns.
  • Haraldur er örugglega enn að keppa í permannettinu... og Viðar Sæberg. hvað er að frétta af Bylgjunni.... Humhum....Lína hvernig gengur með sumarbústaðinn..
  • Jæja gullin mín, ég bið að heilsa ykkur öllum og vonandi hafið þið það gott öll sömul.. Læt heyra í mér seinna ef ég fæ viðbrögð núna..
  • Sjúbbídú!! Mbk.(Magga bloggar krúttlegasta)

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl vinkona.

Sunarbústaðurinn (Skemman) var fluttur 3 maí og búslóðinn 4 maí  (2 fullar kerrur)og höfum við verið allar helgar nema 3 vestur í Straumfirði  síðan og mikið búin að afreka svo sem að draga í rafmagn, punta og gera fínt, planta trjám, smíða pall og svo framvegis. En sl. föstudag fórum við austur á Fárskrúðsfjörð til að vera þar við brúðkaup á laugardaginn og komum norður leiðina til baka og gistum hjá Gísla vini okkar Sig norður í Þíngeyjjarsýslu og hans fjölskyldu í nótt og vorum að koma heim (mánudagskvöld) erum í fríi þessa dagana og stefnum á að fara í sveitina  annað kvöld og bera á húsið og pallinn í vikunni. En stóru stúlkurnar mínar eru að vinna fram á föstudag og þá skrepp ég og sækji þær svo þær geti verið smá í fríinu með okkur. Bestu kveðjur Lína G. VAld

Lína (IP-tala skráð) 9.7.2007 kl. 23:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband