Þetta er greinilega steindauður vefur hjá okkur (ykkur). Fenguð þið kannski alveg nóg hvert af öðru á útskriftarafmælinu í fyrra?
Datt bara svona í hug, ef ske kynni að eitthvert ykkar myndi ramba hér inn, að segja af mér örlitlar fréttir. Í gær flaug ég til Spánar - keypti mér miða aðra leiðina og er sestur að á Costa del Sol, nánar tiltekið í úthverfi Marbella sem heitir Nueva Andalucía. Fannst rétt að drífa í því (ekki þó Drífa Skúla) að rífa mig upp og fara á nýjar slóðir áður en ég yrði of gamall, sem aftur minnir mig á það að á morgun verð ég hálffimmtugur (blóm og kransar afþökkuð).
Og þetta er að sjálfsögðu frábær tímasetning því eitt af mínum fyrstu verkum var að fara á pöbb til að horfa á Spánverja taka Rússa í nefið. Hlakka til að sjá þá vinna Þjóðverja og geta fagnað Evrópumeistaratitli með nýjum nágrönnum.
Með sólarkveðjum úr 29 gráðu hita.
Halli del Sol
haralduring.blogspot.com
Flokkur: Bloggar | 27.6.2008 | 11:39 (breytt kl. 11:42) | Facebook
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
184 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Frábært Halli.
Nokkuð sem alla langar til að gera en fáir framkvæma.
Fagnaðir þú með nágrönnum þínum ??
Kv./ÓA
SVS 1982, 29.6.2008 kl. 22:42
Fagnaði vel og lengi með nýjum nágrönnum. Var búinn að ákveða það þegar mótið hófst að úr því ég væri að fara til Spánar rétt fyrir undanúrslit og úrslit myndu þeir að sjálfsögðu gera það fyrir mig að vinna mótið. Skemmtileg upplifun að fagna Evrópumeistaratitli í knattspyrnu, eitthvað sem Íslendingar gera ekki á hverjum degi.
Halli (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 20:40
Flottur á því Háll, Marbella er stórkostlegur staður, kom þar í Apríl 1980 og gæti svo vel hugsað mér að setjast þar að í ellinni eins og þú ert að gera Hafðu það svo sannarlega gott kæri skólabróðir og til hamingju með evrópumeistarna þína ..
Magnús Guðjónsson, 7.7.2008 kl. 19:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.