Opinn dagur í Háskólanum á Bifröst sumardaginn fyrsta.

Sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl næstkomandi, verður að vanda opinn dagur í Háskólanum á Bifröst. Nemendur, kennarar og annað starfsfólk kynna starf skólans og sýning verður á verkefnum nemenda. 

Boðið verður upp á skoðunarferðir undir leiðsögn nemenda um háskólaþorpið og íbúðir á stúdentagörðum verða til sýnis. Líkamsræktarstöðin og pottasvæðið opið.

Nemendafélagið kynnir hið fjölbreytta félagsstarf sem unnið er á Bifröst. 

Deildarleikar Bifrastar verða haldnir sama dag en þá verður keppt í ýmsum íþróttagreinum (sexþraut). Keppnisgreinar eru fótbolti, körfubolti, kúluvarp, skjalatösku- og hælahlaup, víkingaspilið Kubbur og skotbolti.

Fyrir sigur í hverri grein fær viðkomandi lið þrjú stig en liðið í öðru sæti fær eitt stig. Að lokum verða stigin talin og deildameistarar 2009 krýndir. Fimm lið taka þátt í keppninni; lið viðskipta-, laga-, félagsvísinda- og frumgreinadeilda auk liðs meistaranema.

Boðið verður upp á vöfflukaffi og ís  og miða í Hvalfjarðargöngin fyrir heimleiðina. Leiktæki fyrir börnin verða á háskólatorgi og þau geta farið á hestbak í umsjón fullorðinna.

Dagskráin stendur frá klukkan 14.00 - 17.00. Allir velkomnir.

Opinn dagur á Bifröst


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband