Bloggfærslur mánaðarins, maí 2007

Til hamingju með afmælið mitt.

Sendi öllum innilegar hamingjuóskir á afmælisdaginn minn.

Óli Ara. 

 


Kæru vinir, kærar þakkir.

Til hamingju með daginn öllsömul.

Og kærar þakkir fyrir síðast. Til viðbótar við aðra heilsubresti þá er ég nú kominn með króníska vöðvabólgu í andlitið, af því að brosa. Það hefur nefnilega ekki farið af mér brosið síðan á sunnudag. Og samstarfsfólk mitt hefur spurt hvort ekki sé allt í lagi, og mér vefst tunga um  tönn. Jú víst er allt í lagi þannig séð. En hvernig getur maður útskýrt fyrir ókunnugum að maður sé að brosa af því að fyrir töttögöogfemm árum hafi ákveðinn skólafélagi manns mátað alveg nýja gerð af andlitsgrímum... eða af því að maður var að hugsa um júgursmyrsl... eða af því að manni datt allt í einu í hug þvagleggur. Þetta skilur náttúrulega enginn venjulegur maður. En það gerir ekkert, ég brosi bara áfram.

Þetta var algjörlega frábær helgi. Ég held ég hafi ekki skemmt mér svona vel í fimm ár! Og hvað var svona skemmtilegt??? Jú það voruð þið. Þið sem hjálpuðuð mér að rifja upp allar gömlu GÓÐU minningarnar, og þið sem gáfuð mér margar nýjar sem ég geymi til elliáranna við hliðina á þeim gömlu. Góður dagur er mikils virði, en minningin um hann er ómetanleg. Dagurinn líður hratt, en minningin lifir með manni og yljar manni æfina á enda.

207 group! Þið eigið skildar alveg sérstakar þakkir, fyrir að gefa okkur hinum tækifæri á að lífga gamlar og eignast nýjar minningar. Það er vinna að koma svona samkomu á koppinn og þið sáuð um hana. Hafið heila þökk fyrir. Vegna þessa ómaks ykkar erum við öll ríkari.

Kær kveðja til ykkar allra.

Gísli.

 


Til hamingju með 25 ára útskriftarafmælið.

Í dag, er 1. maí um land allt !!  Þennan dag, fyrir töttöguogfemm árum þá útskrifuðust við úr Samvinnuskólanum - sælla minninga.

 

Til hamingju með daginn !!

Óli Ara.


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband