ÉG FÉKK MEIRA EN VÆGT TAUGASJOKK AÐ KÍKJA Á BLOGGIÐ !!

  • Ég var að koma frá henni blessaðri Reykjavík !! Og náttúrulega það fyrsta sem ég gerði var að kíkja á bloggið en bíðið þið nú við !! Hvað er að gerast það voru 29 sem fóru á síðuna í dag
  •  og einn sem skrifaði JMJ (hrós)!!
  • Ég er svo hissa að það nær ekki tali (með Hemma Gunn.)
  • Ég ætla að fara að hvíla mig fyrir mogundaginn og þá verður hver og einn tekinn í gegn, og meira en það að þeir verða allir nafngreindir og þurfa að gefa mér skýringu !Devil
  • Svo er ég hætt í þessum leik að skora á !
  • Ég er í sjokki
  • Góða nótt elsku krúttípúttí mín !
  • Magga Scheving sem vill bara pallaleikfimi og spinning en ekki gleypa helv... Herbalifepillurnar hans Magga Guðjóns !! Mér er alveg sama þó ég líti út eins og Skúli Óskarsson lyftingarkappi ! Bara flott !! He he !! 

Mikið skelfing veður gott þegar Schelving kemur aftur.

Mikið hlakka ég til morgundagsins.  Ekki vegna þess að þá eru einungis 289 dagar til jóla, þó svo að það sé náttúrulega nægt tilefni, heldur vegna þess að þá hefur Margrét Sch. lofað að byrja að blogga aftur.  Þetta blogg er ekki svipur hjá sjón þegar hennar nýtur ekki við.

Með bestu kveðjum.

JMJ


Sæl aftur kæru vinir.

Nokkurn tíma hefur tekið fyrir mig að finna út hvernig maður fer að því að blogga, hef ekki komið nálægt svona áður. Woundering En ef einhver getur lesið þetta þá er það bara af því hvað ég er ótrúlega tæknilega sinnaður og mikill tölvunörd. Cool Það hefur ekki farið fram hjá mér frekar en öðrum að Magga Sc. er búin að vera á einhverju undanfarið, einhverju sterku sem er ekki ætlað fyrir bílstjóra. Sideways Og varðandi þennan Ása, þá er það eins með hann og Egil Skallagrímsson, ég hef heyrt mikið um hann... en aldrei séð! Skilst þó að hann veiti gott skjól, það kyrrir víst alltaf á nesinu þegar honum er hleypt út. Mætti kanski hafa hann meira útivið.

Og nú er hún búin að skora á alla að mæta í vor með nafni, nema mig, (manni getur nú sárnað) þannig að ég hef ákveðið að mæta, þrátt fyrir óskaplegt annríki og vaxandi tímaskort. Það sem maður á eftir að gera í lífinu vex í réttu hlutfalli við það hvað tíminn styttist sem maður hefur til að klára það. Hafið þið tekið eftir því? Ég held að þetta sé lögmál. Crying (Ég set in svona tilfinningatákn til að auka áhrifamátt textans) Ég óska því eftir því Maggi, að þú staðfestir fyrir mig eins manns herbergi með útsýni yfir Borgarfjörð. Annars eruð þið bara svo ómótstæðileg að maður bara getur ekki sleppt þessu tækifæri til að hitta ykkur aðeins. Ekki satt Halli? Viltu far? Sköllóttir menn geta hvort sem er ekkert í krullu.

Ég var að skoða myndirnar. Snild! Þær vekja með manni einhverja tilfinningu, svolítinn hlátur, og nokkur tár kanski. Bara snild!!! Sáuði bílinn? Og unga manninn við hliðina á honum? Þennan útskeifa í skónum? Ég skal segja ykkur að þessi maður var alveg sannfærður um að eftir fáa mánuði, eitt tvö ár í mesta lagi, myndi hann aka um á svona bíl. Hann trúir því enn, en kanski ekki af alveg eins mikilli sannfæringu. Undecided 

Hlakka óskaplega til að sjá ykkur dúllurnar mínar, knús og kossar Kissing(nei nei nú er maður að verða gamall og meir).

Gísli.

Ps. Hinn heitir Gísli Björn.Smile


Magga SC.................

Ég  var  að  tala við Möggu  SC    og  hún  bað  mig  um að  koma  því  inná  vefinn að hún er  sprelllifandi  og í  fínu formi,  nema aðeins of  þung  en  hún er að vinna  á  því....Hún sagðist myndu  byrja  að blogga aftur á laugardaginn og  þá  skyldum við sko halda  okkur fast... Hún  sagði að Ási  væri  voða góður  við sig  og  hann væri raunverulegur...  Þú  ert  algjör  DÚLLA  ef  ekki  bara Krúsí DÚLLA.   Náðu heilsu og  berðu  Ása  bestu kveðjur....  Hlakka til að sjá  bloggið frá þér á laugardaginn......

Magnús G.

LoL


Dásamlegar myndir

Það er frábært að skoða myndirnar og ekki er textinn verri (gott að vita til þess að kímnigáfan hefur ekki lagast hjá þeim félögum) og eins og þær séu allar teknar í gær, eða fyrradag.

Er hægt að fá upplýsingar um hverjir eru búnir að melda sig svo hægt sé að ýta við hinum?

kv. Dolla


Við drengirnir erum að ná tökum á mótþróaþrjóskuröskuninni..3-3

Jæja  Magga  mín,  staðan heldur að  vænkast  hjá okkur drengjunum...  Staðan  orðin  3-3  og  langt  í hálfleik,,,  Enda  vissi ég  alltaf að þegar við næðum tökum á MÓTÞRÓAÞRJÓSKURÖSKUNINNI  gagnvart blogginu,  þá  færi  þetta að flæða,,  sérstakar þakkir til Eyjólfs   og   Jóhannessanna  að  bregðast við,,,  G. Vald. er ennþá haldinn  einhverri málþroskaröskun  og  bloggar  ekki enn eins og Háll,  Atli, Árni, Þröstur, Guðbjartur (Hvað er að gerast á Vestfjörðum  þið eruð  nú ekki vanir að þegja þar)   Svo  þið sem enn eruð ekki búin  að ákveða  ykkur,  þá  gengur hratt á herbergin á Hamri,  vinnið nú á  félagsfælninni og mætið bara, því fleiri því  skemmtilegra,,,  Þetta  rejúnion  verður   bara Geðveikt...   Magga mín  ég  vona  að þú sért að hressast  og  að Ási sé góður við þig....  Viltu nú setja mynd af Ása  inná vefinn okkar.... Biðjum að heilsa  honum...

Látið  nú alla  vita af  síðunni okkar  hún er sameign  okkar allra

Magnús G.


Yndislegt að sjá stemninguna. Myndirnar eru æði.. hver samdi þessa texta???

Elsku dúllurnar.

Ég held ég hafi ekki í annan tíma grátið annað eins.  Ég renndi yfir myndirnar og textana og hvarf með það sama 25 ár aftur í tímann, þar sem górillur héngu á málmsúlum innan um ástfangin pör, dágóðan karlakór og aðra fasta í drullupolli.  Ég sá gullfallegar stelpurnar fáklæddar  og stalst til að hugsa - Ands.... voru þær nú flottar stelpurnar - brúnar og sætar.  Ég hrökk upp úr hugrenningum við megna ælulykt á ókunnum stað. 

Ykkur kemur það kannski á óvart en ég á líka albúm...  Ég mun reyna næstu daga að vinna úr þeim og skrúfa upp í siðgæðisvitund minni þannig að alls þess sé gætt.

Love

Jóhannes V


Jæja nú er MÍN sko að fara í frí frá blogginu !!

  • Jæja, elsku dúllurnar mínar nú er mín sko að fara í frí frá blogginu, það kemur ekkert af góðu þetta bölvaða læknavesen á mér núna !!
  • En ég lofa því að ég kem aftur og þá verður mín í hörku stuði !!
  • Þið munið stelpur mínar að halda blogginu uppi á meðan ég er í fríi !!
  • Kem örugglega fersk á laugardaginn og þá verður spennandi að sjá hvað þið eruð búin að vera bulla mikið !!
  • P.s. Getur verið  að hann G.Vald. sofi enn ?
  • 1000 kossar elsku krúttípúttídúllurnar mínar !
  • Magga Sch.
  • Og aftur p.s. Jóhannes Már hættu að nöldra (eins og Óli Ara segir) !!Tounge

 

 


Kurteisi

Þið megið ekki skilja þetta þannig að fólk hafi verið að skrifa einvhern dónaskap.  Þetta hefur allt verið með penasta móti.

Þetta er bara svona fyrirbyggjandi.

JMJ


Muna nöfn

Bara að minna ykkur á það aftur að setja nöfnin ykkar við bloggið.  Við erum öll inni á sama lykilorði og því sést ekki hver er að skrifa.  Það er sjálfsögð kurteisi að gera það.  Einnig að setja nöfn sín við athugasemdir sem við skrifum bæði við blogg og myndir.

Ef við skömmumst okkar fyrir það sem við skrifum þá skulum við sleppa því að skrifa það.

Þær myndir sem eru komnar inn eru frá mér, Óla og Magga komnar og berum við ábyrgð á þeim sem og þeim textum sem við þær eru.

Mbk.

Jóhannes Már


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband