Það er hreint og beint ótrúlegt að skoða þessar gömlu myndir. Annað hvort dettur hakan niður á manni (fer reyndar ekki lengur mjög langt) eða maður skellihlær. Ég á engar myndir frá þessum árum einfaldlega vegna þess að ég las (16 ára gamall ) grein um það að ljósmyndir segðu aldrei satt og það væri ekkert að marka þær. Ég sannfærðist svo rosalega að ég tók ekki myndir í 5 - 6 ár. Ótrúleg heimska og mislukkaðir stælar. Ég á fyrir vikið t.d ekki eina einustu mynd frá Hawaii.
Ég man þetta af...æli nokkuð vel um leið og ég sá myndina af trénu. Í huga mér var þetta strönd með einu tré og þar vorum við. Ég held að ég hafi ekki verið fyrstur til að æla...en ég ældi. Um nóttina ældi ég algjörlega út klósettið í íbúðinni. Arnar og Ingó flýðu út strax um morguninn og ég þurfti að borga þernunni ansi marga dollara fyrir að þrífa æluna upp.
En skólastjórinn mætir
Hlakka til að sjá ykkur
Þröstur þú kemur núna er það ekki ?
Eyjólfur
Bloggar | 5.3.2007 | 20:27 (breytt kl. 22:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað varð um Orminn?
sþ
Bloggar | 5.3.2007 | 17:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Það er sko búið að rústa strákunum ! Jibbí jei !! Sko nú er mín sko verulega hressast !
- Oooo Kolla mín ég hlakka rosalega til að hitta þig !!
- Jæja nú hlýtur hún Beta að fara að blogga, ég trúi ekki öðru !!
- Svei mér þá ég held að G.Vald sé enn sofandi Magnús ?
- Bestu kveðjur Magga Scheving.
Bloggar | 5.3.2007 | 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Blessuð öll.
Ég verð víst að láta undan þrýstingi frá Möggu Sch. og skrifa hér nokkur orð. Ég ætla að sjálfsögðu að mæta í partýið í apríl og er nú þegar farin að hlakka mikið til. Ég er sammála Dollu um að við ættum auðvitað að fara öll saman til Hawaii - það væri nú stuð. Við Beta ætlum enn og aftur að REYN(ir)A að sofa saman í herbergi og ég vona að það gangi nú vel hjá okkur eins og ævinlega.
Sjáumst í apríl
Kveðja, Kolla.
Bloggar | 5.3.2007 | 13:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fagnaðu bara eins og þú eigir lífið að leysa,, 0-3 er ekkert sem við drengirnir óttumst, G.Vald er vaknaður og er byrjaður að móta bloggið sitt í huganum og svo fer Háll Ingólfsson www.harla.is alveg að taka við sér og Jói Vald. þegar hann kemur frá útlöndum.... Gísli Sig. og Gísli Björn, Atli Ferðaþjónustubóndi og Árni Rokkbóndi..... Koma nú og mölum Möggu Schel..... og hennar lið.... Vona annars að ÁSI hafi það gott, biðjum að heilsa honum,, kannski getur hann bara bloggað fyrir okkur
Vona að þú sért að hressast
MG
Bloggar | 5.3.2007 | 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
-
Takk Signý, rosalega hlakka ég til að hitta þig !! Þú færð sko knús og og kossa frá mér.
- Maggi heldur þú að G.Vald sé enn sofandi ?
- Við erum stelpurnar erum langflottastar !! Tjúddítjú!!
- Kveðja Magga Scheving.
- p.s. Þessi er góð af mér og Óla Ara, bara nýsloppin út af 11 !!
Bloggar | 5.3.2007 | 07:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þar kom að því farin að blogga eins og unglingarnir, tekst samt ekki að læra málið. Unglingurinn á heimilinu er búinn að gefast upp á að kenna þeirri gömlu bloggmálið.
En mikið er ég glöð þessa dagana að sjá að ekki hefur orðið mikil breyting á mannskapnum.
Hlakka til að hitta ykkur í apríl.
Signý
Bloggar | 5.3.2007 | 00:29 (breytt kl. 00:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Margrét mín,
Ber að skilja þetta þannig að þú ætlir ekki að taka þátt?
JMJ
Bloggar | 4.3.2007 | 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
- Jói Már á ég að lemja þig (þetta myndi örugglega Dolla segja) !! Vitið það strákar að það er 2-0 fyrir mér á móti Magga Guðjóns. Hæ hó jibbí jei það er kominn 17.júní !!
yesssss !!
- Ég held að G. Vald sé enn sofandi !!
- Við tökum þetta stelpur ekkert annað !!
Hvar er Rúna FRÆNKA MÍN ætlar hún ekkert að blogga fyrir frænku sína ? PLÍS RÚNA PLÍS !! Takk Lis besta vinkona fyrir að blogga, þú ert gullið mitt !! (ein voða góð núna).
- Svo er það hún Maggý líka besta vinkona mína hún hlýtur að fara að blogga !!
- Bestu kveðjur Magga Scheving.
Bloggar | 4.3.2007 | 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mikið rosalega stendur þu þig vel Margrét Scheving bloggari
Rosalega er ég ánægð með myndina af pari ársins, við 'Arni tökum okkur ekkert smá vel út, enda fallegt fólk.....
Það verður ekkert smá gaman að hitta ykkur aftur elskurnar, ég er búin að kaupa mér Herbalife duft til að komast í gamla árshátíðardressið . Það er eins gott að líta vel út enda ný orðin amma.
svo stelpur nú er að rífa ykkur í gang og blogga nú......... við látum ekki Möggu eina um það.
kveðja Lisbeth
Bloggar | 4.3.2007 | 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
182 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar