Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
- Þær eru alveg hrikalegar flottar nýju myndirnar, sem þið voruð að setja inn strákar !
- Sérstaklega myndin af Óla Ara með slaufuna frá Kaupfélagi Héraðsbúa !
- Jæja dúllurnar mínar, ég er hætt við reiðilestur. Nenni því ekki !! Alltaf í góðu skapi !! Sjúbbídú !!
- Vonandi verðum við dugleg að blogga, þangað til að við hittumst !! Þá verður gaman !!
- Ennnnn Lína, er G.Vald. enn sofandi ???
- Kossar og knús !! Magga Scheving.
Bloggar | 31.3.2007 | 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Borist hafa af því fréttir frá manni sem reyndar er nokkuð erlendis um þessar mundir að Þórir Páll Guðjónsson muni taka á móti okkur á Bifröst hinn 28 apríl. Mun hann hafa slaufað skemmtiferð starfsmanna erlendis (enda maðurinn afar lítið erlendis) til þess að geta skemmt sér með sínum uppáhalds árgangi.
Eina sem við þurfum nú að ákveða eru tímasetningar á öllum hlutum. Munum við skoða það strax eftir páska.
Mbk.
JMJ
Bloggar | 30.3.2007 | 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Gísli Sig. ég er ekki búin með pillurnar, en þegar ég klára þær fæ ég örugglega pillur hjá honum Magga Guðjóns. Hann á víst nóg að þeim !! (herbalifepillur)
- Ég hef verið ósköp löt í blogginu !!
- Kem með reiðilestur næsta laugardag ! Þið skuluð halda ykkur fast, þangað til !! Sjúbbídú !!
- Ég held svei mér þá, að hún Lína okkar hans G.Vald sé allt of góð við hann !! Strákar ætli hann sé enn sofandi !! Elsku Lína mín viltu vekja hann !! Þú veist að það eru kosningar í vor, svo hann má nú ekki sofa þær af sér ! Svo máttu vera svo væn að láta hann blogga smá til okkar ! Við bíðum og bíðum og bíðum !!
- Ég hlakka svo til að hitta ykkur dr...spaðarnir ykkar !!
- Ég talaði við Magga Guðjóns. í dag og hann lofaði mér að setja inn nokkrar myndir !! Jibbíjei !!
- Bíddu, bíddu, Jói Már ertu að segja það að Eyjólfur skólastjóri ætli ekki að mæta !! Veit hann ekki af því að hann fær skróp í kladdann ef hann mætir ekki ? Eyjólfur KOMM ON ! EKKERT KJAFTÆÐI !!
- Jæja, dúlludósirnar mínar ! Þið fáið yfirhalningu frá mér á laugardaginn !! Verð því miður í Reykjavík á morgun (eins og ég þoli illa Rvk)!!
- Bið að heilsa ykkur öllum !! Knús og kossar !! Magga Scheving.
Bloggar | 29.3.2007 | 19:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það eru góðar fréttir að Lóan er komin.
Það eru hinsvegar slæmar fréttir að Lói ætlar ekki að koma.
Mbk.
JMJ
Bloggar | 28.3.2007 | 17:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nokkuð er um liðið síðan ég bloggaði síðast. Ég hef mér ekki nokkuð til afsökunar, hef ekki verið nokkuð erlendis eins og Jóhannesarnir og fleiri. Ég hef bara verið að byggja nokkuð, og nýðast á Mývetningum, senda þeim rukkanir fyrir fasteignagjöldum og svo leiðis. Mývetningar hafa bara nokkuð gott af því svona annað slagið. Reyndar sýnist mér að J. Vald. hljóti að vera nokkuð mikið erlendis núna, og þá sjálfsagt vanfær um að blogga eins og JMJ. Valdi hefur nokkuð örugglega lagt sig, enda kominn lestími, og Margrét Sc. virðist vera búin með lyfin sín. Þannig að nokkuð hljótt er yfir hópnum núna. En það lagast nokkuð örugglega aftur fljótlega.
Ég hef verið að velta fyrir mér, veit nokkur hvar á landinu þetta er sem við ætlum að hittast? Fyrir okkur sem búum í svona mikilli fjarðlægð væri nokkuð gott að fá svona staðsetningu, er einhver kann. En blessaðir drengirnir senda hana sjálfsagt þegar nær dregur, það er nokkuð öruggt. Þannig að ég hef ekki nokkrar áhyggjur.
Hér í Mývatnssveit er blessuð blíðan og bæirnir allt í kring, vorið að koma og Lóan. Kveðjur.
Gísli.
Bloggar | 27.3.2007 | 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heldur hefur þetta nú róast hjá okkur hérna á síðunni. Ég er búinn að vera nokkuð erlendis síðustu daga og því ekki verið bloggfær.
Ég get hinsvegar fullvissað ykkur um það að það er alveg shitload af dögum fram að jólum.
Ég ætla að grafa eftir gömlu myndaalbúmunum mínum í kvöld og sjá hvað ég finn. Það hljóta líka fleiri að eiga myndir sem þeir geta skellt inn.
Nú er ekki nema mánuður í þetta og við verðum að halda dampi.
Mbk.
JMJ
Bloggar | 26.3.2007 | 12:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Ég held Jói Már og Óli Ara að það vanti fleiri myndir !!
- Jói Vald. hvað eru myndirnar þínar ?
- Ég er hætt að rö... eins og Óli Ara segir !
- Við megum ekki láta þessa síðu detta niður !!
- Verum nú dugleg að blogga, bara smá PLÍS !!
- Kossar og knús dúllurnar mínar !! Kveðja, Magga Scheving sem er öll að braggast !! Er byrjuð að æfa á fullu kraftlyftingar !! Ég ætla sko að taka hann Jóa Már í bekkpressu !! He he !!
Bloggar | 23.3.2007 | 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Fékk að fara útúr vélinni Gísli og hér er allt í þessu fína .. skal ég segja þér
- Magga ekki hætta að blogga
- Heyrumst síðar..... LA er frábær rosalegt að missa af henni um árið
- MAGNÚS G
Bloggar | 22.3.2007 | 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
- Jæja, er bara dottið allt loft úr okkur ?
- Ég bið að heilsa ykkur !
- Sjáumst í apríl !
- Kveðja M.Sch.
Bloggar | 21.3.2007 | 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
- Viðar þú átt ekki blogga í gestabókina, það voru bara við hálfv.. sem gerðum það fyrst.
- Æi, við vorum svo skertar dúllur !
- Svo núna bíðum við eftir bloggi frá þér !! og Haraldi litla barni og Vaðlabóndanum og Jónasi Rúnari Júll og Jón Pétri og Ingó USA töffara og Atla landslagshönnuð og Baldvini og Agli Össura og hinum Gísla (Birni) og Guðbjarti Flateyrartöffara og Gulla Hvanneyrarbónda og Hannesi öskurhana og Reyni (ef að stákurinn veit um þetta ) og Fúsa matreiðslumeistara og Dodda í skotgöfunum og Þresti Ísafjarðartöffara !
- Jæja ! Drífa Skúla, það er ekki nóg að blogga 1x og hvað eru myndirnar ? Það skyldi þó aldrei verða að ég hjálpi þér að setja þær inn !!
- Kossar og knús elsku dúllurnar mínar !! M.Sch.
Bloggar | 19.3.2007 | 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
184 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar