Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Ég datt óvart inn í að horfa á Amazing race fyrir stuttu og var ekki ein þrautin "curling" og ég verð að segja það að ég get vel skilið að sumir taka það fram yfir hitting með okkur.
Annars bíð ég bara eftir að hitta ykkur, (bíð fyrst eftir páskafríinu sem er alveg að bresta á )
kv. Dolla
Bloggar | 19.3.2007 | 14:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
- Jæja strákar ! Hættir að blogga ? Ég hélt að þið mynduð nú halda út í eina viku ! Hafið þið nokkuð frétt af Vaðlabóndanum og hvort að G.Vald. sé sofnaður aftur ?
- Ég hitti hann Fúsa hinn eina sanna á balli s.l. laugard., hann lofaði þá að blogga ! Ég veit ekki hvort að hann muni það í dag !! He He !!
- Jói Már veist þú hvað margir dagar eru til jóla ?
- Jói Vald hvar eru myndirnar þínar ? Strax í dag !! Eða ertu kannski á landinu ?
- Þurfum við að fara að lýsa eftir Dodda í skotgröfunum ? Við höfum ekkert heyrt frá honum !! Díses kræst ! hann er kannski týndur
- Jæja Dolla dúlludós við skulum bara halda blogginu uppi !! (Samþykkt ?)
- Bið að heilsa ykkur dúllurnar mínar !! Magga Scheving.
Bloggar | 19.3.2007 | 11:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
- Margrét Bloggdrottning
- Ég treysti á að þú haldir liðinu við efnið næstu vikuna á blogginu
- Ég þarf aðeins að skreppa til Hollywood í eina viku og taka stöðuna þar og veðrið
- Hamastu nú á þeim sem eiga eftir að gera ENDANLEGA upp hug sinn
- Nú er að duga eða drepast og ég veit að þú dugar
- Ég mun kíkja inn og kannski senda blogg frá LA ef mér finnst ástæða til
- Ég hlakka ótrúlega til að hitta þá sem ætla að koma
- Láttu þér svo batna Magga mín og skilaðu kveðju til Ása
- Magnús G........
Bloggar | 18.3.2007 | 16:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er einhver með tvær Þjóðfélagsfræðibækur? Ég er búinn að týna minni
Bloggar | 15.3.2007 | 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Eftir að hafa bætt við athugasemd við fyrri færslu sem ég reyndi að staga í með upprifjun á Samvinnusögunni sem mistókst gjörsamlega ákvað ég að segja þá sögu eins og ég man hana.
1. Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
2. Jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Kaupfélagsins sveif yfir vötnunum.
3. Benedikt frá Auðnum og einhverjir aðrir Þingeyingar sem ég man ekki hvað heita en voru eitthvað pirraðir (kannski með PMS) sögðu: Verði Kaupfélag Þingeyinga! Og það varð Kaupfélag Þingeyinga.
4. Þeir sáu, að Kaupfélagið var gott, og þeir greindu Kaupfélagið frá dönskum kaupmönnum, kapítalistum og heildsölum.
5. Og þegar fleiri bættust í hópinn kölluðu þeir Kaupfélögin Samvinnuhreyfingu, en hina kölluðu þeir ekki Samvinnuhreyfingu.. Það varð kveld og það varð morgunn, hinn fyrsti dagur Samvinnuhreyfingarinnar.
6. Þá sögðu þeir: Verði SÍS og það varð SÍS.
7. Þá gjörði SÍS Holtagarða og greindi skrifstofurnar sem voru þar sem Menntamálaráðuneytið er núna, frá þeim skrifstofum sem voru annarsstaðar. Og það varð svo.
Var þetta ekki einhvernveginn svona?
Bara ekki gefa út fatwa á mig, þetta átti að vera til gamans gert.
AM.
Bloggar | 15.3.2007 | 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Þakka þér fyrir greinargóðar útskýringar Óli minn, ég er margs fróðari um verslunarhætti Kaupfélags Bannkokks og nágrennis og á það eflaust eftir að koma sér vel fyrir mig.
Ég vil síðan biðja þig JMJ margfaldlega afsökunar á öllum þeim dónaskap sem þú hefur orðið fyrir í gegn um árin af minni hálfu. Ég skil nú að þetta hefur verið þér erfitt Jóhannes, erfiðara en ég hafði áður gert mér grein fyrir. Vafalaust má telja það mikið afrek af þinni hálfu að geta enn látið þig hlakka til jólanna þrátt fyrir öll þessi áföll sem þú hefur orðið að þola vegna mín. Að þú skulir enn standa óbrotinn sínir best hvern mannkosta mann þú hefur að geyma. Ég ætla mér í framtíðinni að reyna að bæta mig, þó að ég þori varla að láta mig dreyma um að ná svo langt að geta tileinkað mér þá fágun sem felst í að geta kvittað undir ritaðan texta með Mbk. En á mörgum sviðum get ég lagast þó ég nái ekki slíkum árangri. Ég bið þig auðmjúklega að fyrirgefa mér.
Það er einnig hárrétt hjá þér að þingeyingar almennt mættu vera kurteisari og betur gerðir á allan hátt en þeir eru í raun. Við höfum okkur fátt til málsbóta. Þó vil ég nefna að aðstaða okkar hefur löngum verið erfið, og þá fyrst og fremst vegna þess hvað við búum í mikilli fjarlægð og langt og erfitt hefur verið fyrir okkur að sækja okkur æðri menntun í mannasiðum og kurteisi. Flestir hafa því neyðst til að sækja hana til Akureyrar. Og því er nú komið sem komið er.
Kveðja.
Gísli.
Ps. Ég er hættur að reyna að senda þér pillur Nafni Björn.
Bloggar | 14.3.2007 | 13:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Margrét Scheving fer mikinn, að vanda. Ekki nóg með að hún þvingi fólk til að blogga heldur heimtar hún tölur yfir þátttöku. Best að verða við því til að fyrra mig vandræðum.
Alls hafa 24 sammóar og 6 makar staðfest mætingu, alls 30 manns.
Mbk.
ÓA.
P.s.
Sísli Gig. Mbk í þessu skeyti er skammstöfun fyrir Mabunkrong (Mahboonkrong), eða MBK Center sem er verslunar kringla í Bankok í Tælandi. Miðstöðin er átta hæðir og 330 metra löng, með 2.500 verslunum í alls 89.000 fermetrum. Þessi verslunarmiðstöð var ein af stærstu kringlum í Asíu þegar hún var opnuð árið 1985. Hún er einkum þekkt fyrir fjölda verslana með farsíma og aðrar rafmagnsvörur, einnig húsgagnaverslanir.
Bloggar | 14.3.2007 | 11:31 (breytt kl. 11:31) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Texti síðustu færslu var tekinn út þar sem viðkomandi merkti sér hana ekki.
Viðkomandi getur sett hana inn aftur með því að merkja sér hana.
Mbk.
JMJ
Bloggar | 13.3.2007 | 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
- Svei mér þá Drífa, égurinn er orðin algjört tölvusé.... eða hitt þó heldur !!
- Ætlar þú að hjálpa mér að skora á Árna Brynjólfs Vaðlabónda að blogga !! Við verðum að hjálpast að, að bögga hann he ! he !
- Lína ekki sefur hann enn, hann G.Vald ?
- Jón Pétur Líndal átti afmæli 6 mars s.l. Til hamingju með afmælið þó að seint sé !!
- Beta á afmæli á laugardaginn næsta og Kolla á sunnudaginn !! Til hamingju elsku snúllunar mínar !! Hlakka rosalega til að hitta ykkur !!
- Ég og Lis höldum fyrirpartý fyrir matinn og þið stöllur haldið eftirpartý!! (samþykkt?)
- Maggi, Jói Már og Óli Ara !! Hvað eru margir búnir að melda sig á sammogleðina hjá okkur ?? (svar óskast strax)
- Jæja,krúsidúllurnar mínar ég verð í fríi vegna Reykjavíkurferðar í tvo daga !! Ég vona að ykkur leiðist ekki rosalega mikið eftir mér
!!
- Maggi ein spurning til þín hvað heitir hún ? þú veist ? hún er kannski frænka mín !!
- Kossar knús elsku dúllurnar mínar !! Magga Scheving.
Bloggar | 13.3.2007 | 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég vil nú bara byrja á því að óska henni.................. MÖGGU-TÖLVUNÖRD..til hamingju með gera annað við tölvuna sína -en að vinna bókhaldið. Nú getur maður kannski búist við því að hún opni póstinn sinn líka???. Gaman að vera farin að blogga með ykkur kæru félagar -og takk fyrir síðast ! Ég sé að það er nóg um að spjalla hjá ykkur...var að lesa það...það eru bara rithöfundar í hópnum sýnist mér. Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei bloggað áður..bara lesið annaramanna-blogg ! Ég á fullt af myndum á tölvutæku formi en hvernig á ég að setja þær inn? bara senda þær á bloggið? Nú verður einhver að bjaraga mér...Kannski Magga Sch. kunni þetta ?..bestu kveðjur í bili Drífa Stenmark
Bloggar | 13.3.2007 | 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
184 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar