Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Þegar ég sá myndina af Eyjólfi einhversstaðar hér á síðunni þá datt mér í hug hvort við ættum ekki að setja myndir af okkur eins og við erum núna inná vefinn, svona til gamans. Endilega tjáið skoðanir ykkar á þessu,,, hér á blogginu ....
MGuðjóns
Bloggar | 12.3.2007 | 23:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
- Jæja, nú er mín í stuði ligga ligga lá ! Ég var að tala við Drífu Skúla í gær og hún var koma úr skíðaferð !!
- Það er alveg á hreinu að þið eigið eftir að heyra frá henni !!
- Ég er rosalega hissa á því að Árni Vaðlabóndi skuli ekki vera búinn að blogga !!
- ÉG ÆTLA AÐ SKORA Á ÁRNA VAÐLABÓNDA AÐ BLOGGA STRAX Í DAG !!
- Bið að heilsa ykkur öllum dúlludósirnar mínar.Kveðja Magga Scheving.
Bloggar | 12.3.2007 | 14:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nei, nú verð ég að viðurkenna að þetta síðasta hjá þeim félögum Gísla og Arnari er nú orðið aaaðeins of djúpt fyrir mig en skemmtilegt. SM
Bloggar | 12.3.2007 | 14:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það var yndislegt að lesa pistilinn þinn Arnar, ég sá skólaárin á Bifröst eins og svarthvítar litmyndir þegar ég las hann. Og það var strax augljóst hver var að skrifa, það skrifar enginn annar svona. Á ég þá ekki tóman djúsbrúsa einhversstaðar??? Svo skulum við átta okkur á því að ef Arnar hefði munað að setja "Arnar" undir pistilinn frá Arnari, þá væri sá Arnar sem skrifaði pistilinn frá Arnari ekki sami Arnar og sá Arnar var sem við kynntumst fyrir rúmum töttögofemmárum á Bifröst! Eða hvað?
Kær kveðja.
Gísli.
Ps. Hvað er með þig Nafni Björn, er ekki lengur hægt að ergja þig???
Bloggar | 12.3.2007 | 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ekki fara í fýlu púrraðu þig upp, taktu törn á spinning hjólinu eða á pöllunum, láttu Ása sleikja úr þér fýluna og byrjaðu að BLOGGA aftur, þú ert ennþá ókrýnd drottning bloggsins, en þú munt uppskera þína kórónu þegar þar að kemur.
Sjáðu bara alla broskallana sem byðja þig um að halda áfram. Bið að heilsa Ása og biddu hann um að sleikja þig upp.. Magga mín koma svo .....
MBK
MGuðjónsson
Bloggar | 11.3.2007 | 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Kæru félagar,
ég sá hér tilkall til mín um að bæta í bloggsarpinn. Tilkallið var jú reyndar til miklu fleiri en þar sem ég var beðinn um það á þeirri forsendu að ég væri efstur á lista (sem hljómar alltaf vel og er nokkuð sem hefur fylgt mér nema þá helst þegar einhverjar Önnur eru að þvælast fyrir) þá er mér ljúft og skylt að stíga af hliðarlínunni, þjóta inn á völlinn, skora svo sem eitt sjálfsmark og láta tækla mig fyrst til hægri og síðan vinstri. Er þá fótboltalíkingum lokið í þessari færslu.
Mér finnst einkar skemmtilegt að sjá hvað fólk er fljótt að smella í sama gírinn og fyrir 25 árum síðan; eins og Dolla sagði hefur kímnigáfan síst af öllu skánað. Enda er góður brandari bara brandari sem verður fljótt óminnishegranum að bráð en lélegur brandari er sem uppvakinn nár sem sækir á mann í svefni jafnt sem vöku og það jafnvel mörgum árum eftir að hann var sagður; þar sem ég sporðrenndi Lion Bar eftir Lion Bar var mér boðið upp á meira Lion Bar, "Nari" og hef heitið það síðan.
Það er ekki annað hægt að segja en að þessi lífsreynsla sem varð til á þessari örstuttu dvöl úti í sveit hafi brennt mark sitt á sál okkar eins og værum við þátttakendur í Survivor eða sögupersónur í Lost. Þarna mótaðist samfélag með sínu eigin gildismati og það bergmálar enn (bergmálar enn(berg... ok- sjáið þið hvað ég á við?)).
Frá því við vorum hnípnir unglingar (á ýmsum aldri) reknir með harðri hendi af gæsagangsmarserandi sængurþjófum niður að einhverri tjörn í hrauninu mitt á milli Baulu og Borgarness til þess tíma að við stunduðum þá íþrótt að tæma meltingarveginn efri leiðina af einskærri gleði undir pálmatré í paradís, frá grýttri og rigningarsveittri sveitinni til suðrænna gullstranda, frá ámátlegum ölvunartilraunum með pilsner í gufu til kokkteila undir Diamond Head; það má sjá ákveðna slóð liggja úr hreinsunareldinum til himnaríkis.
Og það sem gerðist á leiðinni er það sem skiptir máli þó enginn hafi sömu sögu að segja; fyrsti brennivínssopi ævinnar fyrir utan hliðið í gulllitum Mitsubishi Colt; helskakkir pönkarar í bestu hljómsveitum landsins í heimsókn; síðustu upplýstu diskógólf landsins í Reykjavíkurborg; Hooked on Classics, helvítis Hooked on Classics; stanslausar harmonikkurúllirallirútuferðir í Hrútafjörð í einhverjum mér gleymdum en örugglega íþróttatengdum erindagjörðum; Norðurleiðarútunni breytt í Guantanamo með meintum fagurgala; fallbyssuleikir í Commodore Pet(minni: 16K); ég man greinilega eftir öllu nema því sem kennararnir reyndu að uppfræða mig í. Þó kunni ég einu sinni að þylja upp nöfn allra kaupfélaga réttsælis og rangsælis hringinn kringum landið; og er það miður að það skuli hafa gleymst. Það er aldrei að vita nema það gæti komið sér vel.
Þó spyr ég mig þegar ég lít á þessar myndir: "Hvaða börn eru þetta?"
Jafnvel þeir sem mér fannst vera öldungar og hoknir af elli þegar ég var sextán ára birtast á þessum myndum eins og þeir þurfi fullorðna í fylgd með sér á bíó; æskuljóminn blindar.
Best að ég hætti þessu þvaðri; það verður gaman að sjá ykkur. Síðasta uppákoma heppnaðist vel, sérstaklega yljaði það þá mér um hjartaræturnar að sjá myndir af mér löngu gleymdum páfagagaukum.
Bloggar | 11.3.2007 | 10:11 (breytt kl. 23:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Ég er að hugsa um að segja ekkert meira fyrr en mesta lyfjaæðið er runnið af Margréti.
JMJ
Bloggar | 10.3.2007 | 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Kæra Margrét Sc.
Velkomin heim af deildinni, vonandi ertu á batavegi... þó að það sjáist ekki á blogginu frá þér. En viltu samt ekki hætta alveg strax, ég má ekki til þess hugsa að jólakveðjurnar frá JMJ verði allsráðandi aftur. Gerðu það haltu áfram, við skulum öll vera svo góð við þig og gera allt sem þú biður okkur.
Og þið hin, veriði nú dúllur og takiði gleðipillurnar ykkar og skrifiði nokkur orð, ha, fyrir Möggu sína, ha, svo hún verði ekki þunglynd, því hún er ennþá verri þannig. Bara jólakveðju eða eitthvað, ha, geriði það...
Kær kveðja.
Gísli.
Ps. Hinn heitir Gísli Björn!
Bloggar | 10.3.2007 | 20:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
- Ég var að kíkja inn á síðuna og klukkan 19.00 voru 53 búnir að kíkja á síðuna og bara bloggkóngurinn búinn að senda pistil ! Þetta er ekkert grín, svo ég er farin aftur í frí og rosalega fýlu !!
Kveðja frá Möggu Scheving sem er í svo rosalegri fýlu að það er ekki hægt að vera nálægt henni.
Bloggar | 10.3.2007 | 19:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
- Það er víst best að hafa þetta þetta í svona punktum eins svo maður verði ekki skammaður fyrir stílleysi í uppsetningum
- Ég þakka nú guði fyrir að vera á góðri næringu þegar maður þarf að fylgja þér eftir
- Annars er ég rosalega ánægður með hvernig þú tekur á liðinu, svo jákvæð og hvetjandi, ég er viss um að allir blogga í dag, enda enginn maður með konum nema hann bloggi hér ..
- Marga laxa, það man ég ekki 7 eða 8 á stöngina og ég 3 held ég af því, við veiddum bara á flugu ....................
- Þetta er annars bráðskemmtilegur strákur sem þú átt og ótrúlega líkur mömmu sinni, ég hef aldrei séð pabba hans þannig að ég veit ekki hvort hann er líkur honum ....
- Þú veist það Magga mín að þú getur alltaf fengið Herbalife pillur og duft hjá mér bara þegar þú vilt og réttir upp litla fingur, þá mæti ég með skammt fyrir þig .. þú verður bara meiri dúlla sjáðu ....
- En ertu ekki örugglega að hressast ... ég veit reyndar ekki við hverju má búast frá þér ef þú bætir miklu við þig......
- Magga haltu áfram á sömu braut, djöflastu á liðinu og hættum ekki fyrr en allir eru búnir að blogga .. svo krínum við bloggmeistara bekkjarins, svona eins og Date drottningin og kóngurinn voru krínd...á Bifröst..
- Djöfull hlakkar mig til að hitta allt þetta lið, kanntu ekki einhver ráð með að ná á staðinn, þeim sem ætla að skorast undan.
- Ég var búinn að spá í t.d. ef við fáum einhvern í að fingurbrjóta Árna á Vöðlum þá getur hann ekki spilað á ballinu hjá Atla og þá verður að fresta ballinu og þeir eru báður lausir um helgina sem við verðum á Hamri.. Hvernig líst þér á þetta ??
- Ég var líka að spá í hvort við ættum ekki að láta ræna Halla Krullu á Permanentmótinu á Akureyri og flytja´ann í böndum suður í Borgarfjörð,, þetta yrði alla vega besta auglýsingin sem "Krullumótið gæti fengið"
- Jæja nokkuð gott í dag, endilega ef þið eigið skemmtilegar myndir, skannið þær og setjið inná síðuna....
- Bið að heilsa Ása og minntu hann á að vera góður við þig, bið líka að heilsa syni þínum , hitti hann vonandi aftur í Miðfirðinum eða við aðra skemmtilega á...
- Koma svo blogga meira, þetta er spurningin um að vinna heldur bara vera með
- Magnús G.
Bloggar | 10.3.2007 | 13:03 (breytt 12.3.2007 kl. 09:43) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Myndaalbúm
Eldri færslur
183 dagar til jóla
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar