Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Frumsýning á morgun !!

  • Geðveikt gaman hjá mér núna !! Sjúbbídú !!
  • Ég var að fá í hendurnar svo yndislega góða mynd af Óla Ara og Jóhannes Má síðan 1983 !! Hún verður frumsýnd á morgun vonandi tekst mér það !! Ef ekki, þá læt ég barasta Óla hjálpa mér. Hann var nú vanur að leysa öllu tölvuverkefni fyrir mig í skólanum þessi elska !
  • Þetta verður bara gaman !!  OOOOgggg ég hlakka svo til !!
  • Haraldur litla barn, þú veist það að þú verður alltaf litla barnið mitt !! Krúttípúttið mitt !!
  • Kveðja M.Scheving.

Bekkjarbróðir á framabraut.

Jæja þá er spennustigið að verða nánast óbærilegt.  Ég verð nú nokkuð mest erlendis fram á fimmtudagskvöld þannig að ég blogga væntanlega ekki mikið meira.

Ég rakst hinsvegar á frétt í dag um það að Reynir Jónsson hefði verið ráðinn framkvæmdastjóri Strætó.  Er það ekki okkar maður?

Verst að hann geti ekki mætt þannig að við gætum haldið upp á þetta með honum.

Hann hefði kannski líka getað reddað rútu undir liðið upp á Bifröst.

Mbk

JMJ


Krulli er vaknaður

Halli_ekki_fertugurHér er myndin Maggi. Var að vandræðast smá. Ætlaði bara að láta vita í sambandi við framtíðaráformin að ég er ekki orðinn fertugur enn svo ég hef enn tækifæri til að ná mínu markmiði. Myndin - merkilegt nokk - fór bara svona inn af sjálfsdáðum og vildi þar með segja: Ef þú ert ekki orðinn fertugur Halli, af hverju var þessi mynd þá tekin í fertugsafmæli yngsta bróður þíns?

Og Magga, konan mín, sem er reyndar sambýliskona því ég hef ekki haft dug í mér til að kvænast henni enn (hún er þarna í bakgrunni, aldrei langt undan) - hún ræður ekki yfir mér. Ég ákveð sjálfur hvort ég blogga eða ekki. Og þetta blogg er sko alveg til komið af mínum eigin hvötum en ekki vegna þess að þú eða Jóhanna eða Maggi eða einhver annar hafi skorað á mig að blogga. ...eða þannig...

Annars fékk ég þá villtu hugmynd að fara inn í leikhús hér á Agureyris, leigja mér eitthvert mjög eðlilegt gervi og búning, setjast upp í bíl síðdegis á laugardeginum, aka í Borgarfjörðinn og laumast til að vera gestur á Hótel Hamri á laugardagskvöldið - sleppa bara krullupartíinu og bruna svo aftur til Akureyrar fyrir fyrsta leik á sunnudagsmorgun kl. 8:30. Þið skuluð því líta vel í kringum ykkur og skoða aðra gesti hótelsins vel, jafnvel toga í skeggið á einhverjum til að athuga hvort það er ekta.

Nýtt framtíðaráform, ef mér skyldi ekki takast að drekka mig í hel fyrir fertugt: Að keppa fyrir Íslands hönd á Evrópumótinu í permanenti. ...og talandi um permanent og svoleiðis, hafiði velt því fyrir ykkur hver sá um að klippa mig á Bifrastarárunum? Þessar tvær myndir sem skarta mér sýna svo ekki verður um villst að þar hef ég ekki lent í skærum fagmanns... eða var þetta tískan þá? 


Tek undir með Möggu Sceving og óska öllum gleðilegs sumars......

Jæja  nú er  bara rétt rúm vika  í  flottasta,  skemmtilegasta, besta og ótrúlegasta  REJÚNION  sem haldið hefur verið.    Ég löngu  hættur  að spá  í  það hverjir  koma því  það verður  svo ótrúlega skemmtilegt  hjá  okkur sem  mætum....  Við  sem mætum  viljið  þið  taka  með ykkur  hluti  sem tilheyra  tímabilinu  okkar á Bifröst,  s.s.  eins  og myndaalbúm,  gömul  skólablöð  Ecce homo, Vefarann,  Þefarann   og svo framvegis  og  hvað eina  sem minnir  á  Bifrastardagana... Þetta  er  mjög  mikilvægt....

Hlakka  hrikalega  til  að hitta  ykkur öll....eftir átta daga...

Halli  afhverju tókstu myndirnar af  þér út aftur,  sem voru  inni á  síðunni  í   5 mínútur  um daginn ?? 

 Sjáumst 

 Magnús G..


Gleðilegt sumar góðir hálsar og aðrir hálslausir !!

  • Jæja, dúllurnar mínar nú er komið sumar í mínu hjarta !! Djúbbídú !!
  • Nú er bara níu dagar í hittinginn ! Vá, það er að koma að þessu. Díses kræst !!
  • Ég er búin að vera svolítið dugleg að hringja í nokkra sem ætla ekki að koma og tékka á því hvort að það sé ekki enn von hjá okkur að fá fleiri !
  • En ég lét það nú fylgja fyrst þeir ætli ekki að mæta þá yrðu þeir að blogga, svo ég bíð og bíð og bíð.
  • Doddi, konan þín lofaði því að láta þig blogga !!
  • Halli, konan þín lofaði því líka að láta þig blogga !!
  • Viðar Sæbergs. þú LOFAÐIR ÞVÍ AÐ BLOGGA, annars klaga ég í Bylgju þú veist ?
  • Dolla dúlludós þú átt eftir að blogga. Ég vona að Dolla fái hálsbólgu eða að kórstjórandinn fái flensu !! Núna, var ég ljót stelpa að segja svona !!  Eennn ég er í hálfgerðu losti að hafa ekki hana hjá okkur !!
  • Ég talaði við Guðbjart, það er svo mikið að gera hjá honum.  Hann var nú ekkert búinn að kíkja inn á bloggsíðuna hjá okkur ! Ég húðskammaði hann fyrir það svo ég vonast nú til þess að fá smá blogg frá honum !
  • Ég náði ekki í hann Þröst Óskars. ég held að hann hafi ekki þorað að svara mér, örugglega hræddur við gribbuna !! Sjúbbídú !!
  • Jæja dúllurnar mínar hafið þið nú góðan sumardag !!
  • Kossar og knús !! M.Scheving.

Sambandið lifir!

DSCN2987Á ferð um Austfirði um verslunarmannahelgina í fyrra rakst óþekktur ferðalangur úr hópi útskriftarnema SVS 1982 á óvæntan glaðning. Þannig háttar nefnilega til á Stöðvarfirði að þangað hafa ekki borist fréttir af andláti SÍS og því skartar gamla kaupfélagshúsið enn hinni sígildu hönnun, sjálfu sambandsmerkinu.

Óþekkur farðalengur

 

DSCN2988


Svo bregðast tré sem önnur....

Hæ öllSvo bregðast tré sem önnur.    Ég hef verið í sambandi við góðar stelpur úr mínum árgangi í dag og sameiginlega berum við í brjósti óánægju með þetta brottfall sem virðist vera landlægt.  Nú síðast frá Ísafirði af öllum stöðum.

Heyriði mig nú elskurnar....... Það sjá allir ógildi þeirra raka sem sumir úr okkar ágæta hópi hafa haft í frammi að undanförnu vegna væntanlegrar fjærveru sinnar.  Nú síðast voru þær meira að segja rakalaus.  Hvort einhver spilar BOTSIU eða eitthvað annað.. þá getur sá hinn sami fundið betri tíma til þess en akkurat tímann sem við ætlum að hittast.  Þá heyrði ég af einhverjum í dag sem forfallast vegna Gospel tónleika af öllu – ég mundi frekar taka mark á hælsæri....   Jónast.... 25 ára brúðkaupsafmæli -  Það er alveg ljóst hvar áherslurnar liggja hjá þér... við munum þetta...  Það er ekki svo að skilja að þetta hafi verið ákveðið í gær....

Eins og maðurinn sem komst loksins til Jótlands sagði;  .. ég fer ekki héðan fyrr en ég sé helvítis kubbana";  þá verður ekkert gaman nema maður sjái stelpurnar.  Hvaða afsökun hefur Magga Geirs?  Ég trúi ekki fyrr en ég tek á að Sveif og Sigurbjörg og Guðrún ætli að klikka.  Dolla komdu þér úr þessari safnaðarnefnd - hefurðu hugleitt aðra trú.  Maður kemst jú með helv. Kóraninn hvert sem er....

Hvað er með Dodda.  Hefur einhver heyrt í honum.  Jón Pétur - mér finnst þú kunna nóg....

Bjartur hvar ert þú þá þegar við þurfum mest á þér að halda.

 Ég trúi því bara ekki að fólk taki þessu samkvæmi okkar svo léttúðlega að innan við tveir þriðju mæti.

Þetta hafði ég að segja í dag...

kv

jv


Hefur þú misst andlitið ?????

Vilt þú hafa skólamyndina svona ?  Það er enn tími til að skrá sig á 25 ára ríjúníonið sem haldið verður að Hótel Hamri 28. apríl n.k. og fá andlitið aftur.

Hefur þú misst andlitið

 

 


Jæja dúllurnar mínar !!

  • Nú fer að styttast í hittinginn !! Oooog ég hlakka svo til !!
  • Í þessari viku hef ég nú trú á að Drífa Skúla setji inn myndir !! 
  • Ég vona að fleiri eigi eftir að melda sig í stuðið hjá okkur, guð minn góður krakkar þið vitið ekki að hverju þið eruð að missa. Sko t.d. er Jói Vald. búinn að lofa að vera með góð skemmtiatriði !! Hann er svo frábær og stóð sig svo vel sem umboðsmaður okkar Lis !! Við urðum sko heimsfrægar allt honum að þakka !!
  • Flottar myndinar hjá ykkur strákarnir mínir, þið eruð svo duglegir !! Ææii, hvað segi ég alltaf, já ég man það núna !! Sjúbbídú !!
  • Ég á eftir að blogga meira í vikunni, nenni því ekki núna er þreytt eftir Rvk.ferðina.
  • Bið að heilsa ykkur öllum dúllurnar mínar !! Knúsíknús !! Magga Scheving.  

Framtíðaráform nokkurra nemenda útskrifaðra 1982 - skyldi þau hafa ræst ???

Arnar:  Fara til Brasilíu og græða á bjálfunum þar.

Baldvin Albert: Að græða, mennta sig, ferðast og lifa lífinu.

Egill Össurar:  Ná mér í duglega kerlingu sem getur unnið fyrir mér.

Elísabet: Fá mér nýjar buxur og stúdentspróf.

Eyjólfur: Komast í Garðyrkjuskólann og verða milið blómabarn.

Gísli Sig: Verða ríkur og fá sér nýjan Benz.

Guðbjartur: Að halda lífi.

Guðlaugur: Að eignast góða konu og góða hesta.

Guðmundur Atli: Að verða íslandsmeistari í þvi sem ég verð ekki heimsmeistari í.

 G. Vald.: Að koma Sparisjóði Skagastrandar í þátíð.

Guðrún Árna: Klára stúdentinn og fara í endurskoðun í háskólanum.

Guðarún Jóns: Framtíðaráform óákveðin.

Hannes: Fara í farmhaldið og gera gagn í lífinu.

Haraldur: Drekka sig í hel um fertugt.

Ingólfur: Safna miklu og góðu skeggi.

Jóhannes Már:  Framtíðin verður ágæt, þakka þér fyrir (verða ríkur).

Jónas: Að taka við Lenda í Bandinu og þá að sjálfsögðu að greiða út arð.

Kolbrún: Fara í framhaldið og hefja "búskap" með Guðrúnu Árna.

Kristrún: Mennta sig og ferðast.

Lísbeth: Búa í ferðatösku fyrst um sinn.

Magnea: Læra meira og hvíla sig í faðmi fjölskyldunnar.

Magnús: Mennta sig aðeins meira til að fá góða vinnu.

Margrét Geirs: Að verða eitthvað innan Sjálfstæðisflokksins.

Margrét Sch: Leigja íbúð í Reykjavík með Ása sínum og leggja stund á framhaldsnám.

Ólafur: Gera KHB stórt.

Reynir: Kaupa nýja Canon F1 myndavél.

Signý: Skoða restina af heiminum.

Sólveig: Að skoða þennan "heim" sem allir eru að tala um.

Svava Björg: Búskapur, búskapur, búskapur.

Viðar: Að vinna einkaframtakinu ómetanlegt gagn um ókomna framtíð.

Þórður: Klára skólann, fara til Hawaii í vor og láta hitt ráðast.

Þröstur: Klára framhaldið og verða mikill maður.

Úr Ecce Homo

ÓA.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband