Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2007

Bent hefur verið á ....

.... að samvinnustefnan sé alþjóðleg hugsjón, sem fætt hefur af sér fjöldahreyfingu um viða veröld.  Hún byggir á þeirri einföldu staðreynd að með samvinnu margra verður meira unnið en hinir sömu menn fengju áorkað hver fyrir sig.  Klettur bifast ekki, þótt margir menn leggi við hann hver á fætur öðrum.  Reyni þeir hins vegar við hann allir í senn og verði vel samtaka veittist þeim auðvelt að velta bjarginu.

 

Sambandsmerkið

Aðvörun: Þessi færsla er ekki fyrir viðkvæma

Við munum öll eftir miklu félagslífi á Bifröst, skipulögðu og óskipulögðu, reglubundnu og stjórnlausu. Mér skilst að íþróttir hafi líka verið stundaðar.

En ég vil gera listalífið að umræðuefni mínu og þá sérstaklega ljóð-og sönglist.

Ég myndi fjalla um ballet hérna en ég hafði of lítið af honum segja enda útilokaður með nafni úr dansflokknum. Þetta hefur reyndar setið í sálinni síðan og ég lagt áherslu á listrænan dans þegar ég er á almannafæri en ekki uppskorið mikið lof fyrir af einhverri óskiljanlegri ástæðu.  Þannig að ég vil leggja áherslu á það sem ég hafði sjálfur kynni af.

Í fyrsta lagi var það auðvitað Bældir tónar sem varð til þegar sálfræðidoktornum verðandi var vikið úr kórnum sökum lagleysis. Eins og sönn stjarna gat hann ekki þar við unað og lét sér ekki nægja að komast í kór; hann stofnaði kór og gerðist kórstjóri. Margir vaskir sveinar (voru einhverjar dömur?) skráðu sig í kórinn og fengu að því liggur við kynferðislega útrás í kraftmiklum söng. Ef áfallahjálp hefði verið til í þá daga hefði henni þegar verið beitt á fórnarlömb kórsins. Best þótti kórnum að syngja við þar aðstæður þar sem áheyrendur komust ekki út svo sem í Norðurleiðarrútunni. Hápunkti náði kórstarfið þegar skólastýran á Varmalandi ætlaði að kæra hann fyrir misbeitingu á þjóðsöngnum og öðrum fögrum ættjarðarlögum. En það heyrðist ekki í henni fyrir skruðningunum sem mynduðust þegar öll helstu tónskáld þjóðarinnar snarsnérust í gröfum sínum.

Annað merkt framtak sem JMJ minnti mig á var ljóðabók sem fjögur ungskáld gáfu út undir dulnefnum (sem kemur kannski ekki mjög á óvart þegar ljóðin eru skoðuð). Þau afhentu öðru úngskáldi, Sigmundi Erni Rúnarssyni, ljóðabókina við hátíðlega athöfn og ferill hans eftir það ber viss einkenni þess að hann sé ekki búinn að jafna sig.

Ljóðabókin er ónefnd. Kannski hún hafi heitið Ónefnd. Skáldin kjósa að kalla sig ÓP, TVC, St. Joe og NN. Þau eru öll gríðarlega dramatísk og ljóðin einkennast af mikilli innri baráttu milli sjálfsupphafningar og sannfæringar um að kerfið muni gleypa þau. Heimurinn er vondur en skáldið æðislegt. Einnig er kalda stríðið að herja á hugarheima skáldanna. Hormónaflæði gæti líka hafa haft áhrif.

 

Hér eru nokkur dæmi.

Ljóðið Ljóð eftir ÓP. Það er svona:

"Mér finnst ég vera Superman.

Samt ætla ég ekki að bjarga heiminum."

 

Annað gott er Strengir eftir St. Joe.

"Komdu vina!

Sláðu á strengi mína.

Nei,

ekki misskilja mig.

Ekki segja falleg orð.

Ekki reyna að gleðja mig.

Nuddaðu læri mín.

Ég er með strengi."

 

Sameiginlegt ljóð TVC og St. Joe heitir Hnignun:

"Lampi á útopnu

reynir að gleypa epli.

Tveir drengir

misþyrma lampanum

og éta eplið.

Lampinn hverfur

í rautt hvolf.

Við sjáum hann ekki framar fyrir útbreiðslu kommúnismans.

Brátt verður Marx að ryki."

Ragnarrök eftir NN:

Fjólublátt ljós klýfur himingeiminn.

(Brimkló notar Bose)

Sundursker heiminn.

 

AM


Stóri dagurinn nálgast.

Vonandi hafa allir haft það gott um páskana.  Hef ekki verið tölvutengdur frá því ég henti inn nýju myndunum sem ég fann óvænt við tiltekt í geymslunni rétt fyrir páska.  Síðan þá hef ég verið mikið Norðlendis.

Við reynum að setja inn í þessari viku lista yfir alla sem mæta og pantanir á herbergjum þannig að allir geti staðfest.  Síðan þurfum við að tímasetja heimsóknina upp á Bifröst.

Mbk.

JMJ


Gleðilega páska elsku dúllurnar mínar !!

  • Gleðilega páska  elsku dúllurnar mínar !
  • Nei, nei, hann Jói Vald er á landinu núna ! Hvað kemur til ?
  • Jói Már hvað eru margir dagar til jóla ?
  • Það er allt gott að frétta af mér, mín er sko í sumarbústaðnum sínum  og hef það rosalega fínt !
  • Hvað eru margir dagar í hittinginn ? Sjúbbídú, hvað ég hlakka til að hitta ykkur !!
  • Lína, það er allt í lagi að blogga aðeins yfir páskana !
  • Strákar hafið þið nokkur heyrt í honum Haraldi (litla barni) ? Ef svo er þá skilið þið kveðju til hans frá mér !!
  • Jæja dúlludósirnar mínar, bið að heilsa öllum. M.Sch.

Ísólfur mótmælir

Ég rakst á allt þetta glæsilega og allavegana í endurminningunni, sérlega skemmtilega fólk! Það er greinilegt að mannskapurinn, þó örlítið eldri sé, er virkur, traustur og framsækinn enda gefur trommuleikarinn taktinn!! -- Ég geri örlitla athugasemd við ummælin um vaxtarleg mitt við myndina af granna kennaranum, því ég hef alltaf litið þannig á að ég væri bæði hár og grannur! -- og geri þar reyndar enn! Hagið ykkur vel á 25 ára júbílantamóti ykkar sem framundan er! "Því námið kennir meira en náttúran!

Hafið það alltaf sem best!  Kæar kveðjur, Ísólfur Gylfi Pálmason

 

 

 


Nú eru að koma Páskar, hvar er JMJ......

  • Þakka  þér  Gísli  Björn fyrir bloggið,  afsakaðu  böggið  ég  vissi  að þetta með  myndina úr  partýinu myndi virka,  þú  ert  semsagt  sloppinn......
  • Eru  engir  aðrir  en  við  JMJ  sem  tókum myndir á  Bifröst  ??  ef  einhverjir  eiga  myndir  þá  getum við  tölvuséníin  alveg  skannað þær  inn og  sett  á síðuna,  Óli er  með okkur í liði  og  reddar  þessu... 
  • Halli  krulla,   til hamingju,  þú  ert  semsagt  kominn á  toppinn og  þarft  því  ekkert að mæta  á  mótið í  lok Apríl og kemur bara með  okkur á  Bifröst,  alltaf gott að hætta  við toppinn  sinn.....
  • Jóhannes  Vald ...   hvar  eru  myndirniar þínar sem þú lofaðir,  Magga  Scheving  man  öll  svona loforð,   stattu  þig  og  komdu með myndirnar annars.. 
  • Það  var  hrikalega  gaman  í  Los  Angeles  og  ég  skil ekkert í því afhverju við tókum ekki  nótt þar á leiðinni til Hawaii um árið ...
  • Nú fer  að styttast í  þetta Húllum hæ  okkar  og  þvi  miður eru  3 af  þeim sem voru búnir að bóka  sig  búnir  að forfallast síðan  og  það er  hið  versta mál,  tökum nú  höndum saman og  sýnum  hvað í þessum BEKK  BÝR  OG  FJÖLMENNUM  Á  ÞETTA REUNION,  ÞAÐ ERU ALLIR  LIFANDI Í BEKKNUM  ENNÞÁ  OG  HÖLDUM NÚ BARA UPPÁ  ÞAР SEM  SLÍKT. 
  • ÉG  SKORA  Á  ALLA,  ALLA  AР  MÆTA  SEM  MÖGULEGA  GETA  OG  FINNA  EINHVERJAR  LÁSÍ   AFSAKANIR.
  • JÆJA  GOTT Í  BILI
  • ÉG  BIÐ AÐ HEILSA  ÁSA  OG SEGÐU HONUM AÐ VERA GÓÐUR VIÐ ÞIG OG HUGSA VEL UM ÞIG UM PÁSKANA OG  SKAMMTA Í ÞIG PÁSKAEGGIN,  SVO ÞÚ GETIR  EITTHVAÐ Á  SPINNING HJÓLINU  Á  HAMRI...
  • GLEÐILEGA  PÁSKA  KÆRU BEKKJARSYSTKYN    OG   MÆTIÐ SVO ÖLL  Á  ENDURFUNDAHELGINA  Í  LOK MÁNAÐARINS  .
  • MAGNÚS GUÐJÓNS Tounge

TIL HAMINGJU LITLA BARN !!

  • Vá, hann Haraldur (litla barn) fékk bronsið í Krullu !! Til hamingju elsku dúllan mín Wink
  • Ég óska honum Gísla Sig. til hamingju með afmælið  þann 1.apríl s.l. Drengurinn á bara tvö ár í 50 !! He he !! Og ég sem hélt það að við værum nú bara rétt að skríða yfir tvítugt !!
  • Bíddu! ekki eru þeir Maggi Guðjóns. og Eyjólfur hættir að blogga ?
  • Ég talaði við Fúsa, hann lofaði mér að skella inn einu bloggi svona þegar að hann hefði tíma, hann sagði nú orðrétt: HVAÐ HELDUR ÞÚ AÐ MAÐUR HAFI NÚ ALLTAF TÍMA TIL AÐ LEIKA SÉR ALLTAF !! Ég held krakkar að hann sé að eldast greyið ! Svo notabene hann en nú karlmaður, og þeir geta nú ekkert gert nema eitt í einu (ekki satt strákar ?)
  • Drífa Skúla er stikkfrí fram yfir páska ! Hún er að fara ferma kerlingargreyið á Skírdag !! Svo það er nóg að gera hjá öllum nema mér held ég Smile
  • Jæja krúttinpúttin mín, bið að heilsa ykkur öllum. M.Sch.
  • p.s. Dolla dúlludós eitt blogg !! 

Kveðja úr höfuðborginni

Sæl veriði öllsömul. Gísli hérna, ekki þessi feiti í Mývatnssveit heldur hinn. Allavega, gaman að heyra og lesa frá ykkur. Ég er latari en allt þegar kemur að bloggi, sem sést á því að ég hef einungis einu sinni bloggað áður en kom að þessu bloggi. Allt of mikið að gerast, var að klára leiksýningu og fer að standa í flutningum með leikfélagið mitt núna í sumar (Leikfélag Kópavogs). Frábærar myndir sem búið er að setja inn :) 

Gísli Björn 


« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband